Þann 13. október 2012 munu milljónir manna á vegum Heimsambands KFUM koma saman til þess að setja nýtt heimsmet.
Heimsáskorun KFUM – 2012 „Hoop Springs Eternal“ er viðburður skipulagður þann 13. október 2012 til þess að fagna starfi KFUM um allan heim á sviði valdeflingar ungs fólks. KFUM félög munu skipuleggja viðburði þar sem að öllum þátttakendum og fleirum verður boðið að skjóta á körfu. Viðburðirnir verða fjölmargir á þúsundum staða um allan heim.
KFUM ætlar að setja nýtt heimsmet með því að safna saman fleira fólki en nokkurn tímann áður hefur verið gert til þess að skjóta á körfu í tilefni viðburðarins.
Um allan heim mun félagsstarf KFUM af öllum toga s.s. íþróttir, tómstundir, tónleikar, ljósmyndasýningar og margt annað kalla fjölda fólks til þátttöku í degi fagnaðar og sköpunar. Körfubolta áskorunin mun sameina hina fjölmörgu viðburði um allan heim. Það var innan vébanda KFUM sem körfuboltinn varð til 1890. Í dag er körfubolti ein vinsælasta íþrótt heims og hefur hún reynst mikilvægt verkfæri til heilsueflingar.
Viðburðurinn hefst í Nýja Sjálandi kl. 8.00 á staðartíma að miðnætti sama dag á Hawai. Þennan dag verða fjölmörg samfélög og fjöldi menningarheima tegnd saman í gegnum beina veflýsingu og samfélagsmiðla.
Viðburðirnir verða öllum opnir, einstaklingum og fjölskyldum, eins og allt starf KFUM. Allir áhugasamir um viðburðina geta nálgast upplýsingar hjá KFUM í viðkomandi landi. Listi yfir landshreyfingar KFUM félaga er að finna hér www.ymca.int.
Við hér á Íslandi tökum vitanlega virkan þátt í þessum stórmerkilega viðburði og verðum með dagskrá á Akureyri, í Keflavík, Vestmannaeyjum, Hveragerði, Borgarnesi og í Reykjavík. Nánari upplýsingar um tímasetningar og dagskrá á hverjum stað mun birtast innan tíðar hér á heimasíðunni.
Alþjóða körfuknattleikssambandið og UNESCO eru stuðningsaðilar verkefnisins.