Alþjóðaráð KFUM og KFUK hvetur leiðtoga og aðra áhugasama innan félagsins að sækja um námskeið sem WAGGGS heldur í Antwerpen um mánaðarmótin nóvember desember.
Nafn viðburðar: Stop the violence: Girls speak out!
Skipuleggjandi: Wagggs (World Association of Girls guide and girl scouts)
Dagsetning: 29. nóvember – 4. desember 2012
Staðsetning: Antwerpen, Belgíu
Fjöldi fulltrúa frá KFUM og KFUK á Íslandi: 1 – 2 kvenkyns
Kostnaður sem fellur á þátttakanda: 30 % ferðakostnaðar ásamt þátttökugjaldi, samtals um 50 þús. kr.
Aldurstakmörk: 18 – 30 ára.
Nánari upplýsingar:
Wagggs hefur staðið fyrir herferð með yfirskriftinni: „Stop the violence: Girls speak out“. Samtökin bjóða nú uppá námskeið fyrir kvenkynsleiðtoga, með sömu yfirskrift, til að efla þá í að láta rödd sína heyrast og efla þekkingu þeirra í mannréttindum. Áhersla er lögð á kvennréttindi. Einnig eru þátttakendur hvattir til að vekja athygli á málefni kvenna í sínum heimalöndum og fer hluti af námskeiðinu í að undirbúa það.
Þátttökugjald upp á 160 € fellur á þátttakanda ásamt 30 % af ferðakostnaði til og frá Antwerpen. Þetta er áætlað samtals um 50 þúsund krónur. 70 % af ferðakostnaði ásamt fæði og gistingu er greitt fyrir þátttakandann.
ATH! Umsónarfrestur rennur út fimmtudaginn 27. september.
Alþjóðaráð KFUM og KFUK á Íslandi mun fara yfir umsóknirnar og velja úr. Allir umsækjendur verða látnir vita hvort þeir hafi komist að eða ekki. Að lokum mun KFUM og KFUK sækja um að fá að senda viðkomandi einstaklinga á námskeiðið.
Þegar farið er í gegnum umsóknir sem berast fyrir þátttöku á viðburðum erlendis á vegum Alþjóðaráðs KFUM og KFUK á Íslandi eru nokkur atriði sem spila inn í valið á þátttakanda.
-Sú þekking sem af viðburðunum hlýst þarf að nýtast þeim einstaklingi sem það sækir og félaginu í heild.
-Einstaklingurinn þarf að vera virkur sjálfboðaliði og/eða starfsmaður innan félagsins, þekkja stefnu þess og starf og bera hag þess fyrir brjósti.
-Valið byggir að mestu leyti á þeirri umsókn sem umsækjendur skila inn. Gæði umsóknar og vandvirkni við vinnslu hennar skipta miklu máli.
-Reynt er að kynna sér einstaklinginn með því að spyrjast fyrir um hann.
-Þekking, reynsla eða sérstakur áhugi á því sem námskeiðið fjallar um er ávallt plús.
Ef óskað er eftir nánari upplýsingum hafið samband við Sólveigu með tölvupósti á solvreyn(hjá)hotmail.com
Umsókn um þátttöku í ráðstefnunni
[form utlond]