Fimmtudaginn 13. september verður námskeiðið Verndum þau haldið í húsi KFUM og KFUK á Holtavegi 28 kl. 17:00. Námskeiðið er skyldunámskeið fyrir þá sjálfboðaliða og starfsmenn í starfi KFUM og KFUK sem ekki hafa sótt námskeiðið á síðustu 3 árum. Námskeiðið er einnig opið öllum þeim sem starfa með ungu fólki.
Á námskeiðinu verður farið yfir hvernig bregðast skal við grun um hvers kyns ofbeldi eða vanrækslu gegn börnum eða unglingum. Afar mikilvægt er að þau sem starfa með börnum og unglingum þekki viðeigandi viðbrögð, komi slík mál upp í starfinu. Hægt er að skrá sig á námskeiðið með því að senda tölvupóst á skrifstofa@kfum.is, hringja í síma 588-8899 (Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK) eða á Facebooksíðu námskeiðsins https://www.facebook.com/events/196213763843334/.
Kennari á námskeiðinu verður Þorbjörg Sveinsdóttir, sem hefur víðtæka reynslu af barnaverndarmálum, og er annar af tveimur höfundum bókarinnar Verndum þau.
Boðið verður upp á kvöldmat á námskeiðinu og því er mikilvægt að skrá sig, en námskeiðið er öllum opið.