Sæludagar í Vatnaskógi

Sæludagar á vatninu

Skógarmenn KFUM ásamt KFUM og KFUK á Íslandi standa fyrir fjölskylduhátíð um verslunarmannahelgina undir heitinu Sæludagar í Vatnaskógi. Þessi hátíð hefur fest sig í sessi sem áhugaverður og vímulaus valkostur á þessari mestu ferðahelgi Íslendinga. Markmiðið með hátíðinni er að skapa heilbrigða og eftirsóknaverða hátíð á sanngjörnu verði þar sem höfðað er til ólíkra aldurshópa.

Svæðið opnar á fimmtudagskvöldi fyrir Sæludagagesti. Boðið er upp á dagskrá frá fimmtudagskvöldi og fram að mánudagshádegi.

Verð á Sæludaga er kr. 4.500.- Ókeypis er fyrir 12 ára og yngri í fylgd með fullorðnum. Verð fyrir dagsheimsókn er kr. 2.500.-

Rútuferðir

Rútuferð í Vatnaskóg verður frá Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK við Holtaveg í Reykjavík á föstudeginum kl. 17:30 og frá Vatnaskógi á mánudeginum kl. 13:30. Þeir sem hyggjast nýta sér rútufar eru beðnir að panta rútufar hjá Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK í síma 588-8899.

Rafmagn á tjaldsvæðum

Boðið er upp á þann möguleika að tengjast rafmagni fyrir fellihýsi, tjaldvagna o.s.fr.v. Verð er kr. 1.800.-  fyrir alla helgina (ekki fyrir mjög orkufrek tæki). 

Matskálinn

Matskálinn er upplýsingamiðstöð Sæludaga. Þar er einnig verslun og matsala.

Café Lindarrjóður

Í Birkiskála II (nýbyggingu staðarins) er boðið upp á kaffihús, Café Lindarrjóður.

Sæludagar hæfileikakeppni

Gospelsmiðja fyrir 6 ára og eldri

Gospelsmiðja verður fyrir hressa krakka (6 ára og eldri). Æfð verða atriði og sýnd á kvöldvökunni á laugardagskvöldinu. Opnar æfingar verða: á föstudag kl. 19:30 og á laugardag kl. 12:30 og 17:00. Allir krakkar 6 ára og eldri velkomnir.

Gospelkór fyrir 14 ára og eldri

Boðið verður upp á þátttöku í Gospelkór. Skráning og upphitun er á laugardeginum kl.10:00 í sal Gamla skála. Allir áhugasamir 14 ára og eldri eru velkomnir.

Kvöldvökur

Kvöldvökur verða á föstudags-, laugardags- og sunnudagskvöldin í íþróttasalnum í Vatnaskógi þar sem boðið er upp á vönduð skemmtiatriði, góðan söng og  hugleiðingu út frá Guðs orði.

Tónleikar

Tónleikar með Hundi í óskilum verða á laugardagskvöldið, sem hefur slegið í gegn fyrir stórskemmtilega sviðsframkomu. Einnig mun hljómsveitin Tilviljun? framleiða ljúfa tóna fyrir gesti nokkrum sinnum yfir helgina.

Útigrill

Útigrill framan við Matskála eru til almennra afnota.Hægt er að kaupa á grillið í versluninni.

Bílastæði

Bílastæði eru vestan við íþróttavöllinn (á malarvelli). Vinsamlega leggið bílum þannig að þeir loki ekki akstursleiðum.

Sturtuaðstaða

Tveir búningsklefar ásamt sturtum eru í íþróttahúsinu. Annar klefinn er merktur konum en hinn körlum.

Salerni

Salerni eru í flestum húsum á svæðinu. Vert er að athuga að salernin eru fyrir bæði kynin og er því fólk beðið um að sýna viðeigandi tillitssemi.

Rusl

Ruslatunnur eru staðsettar á tjaldstæðunum. Ruslagámur er staðsettur fyrir aftan Matskálann.

Bátar

Bátar eru lánaðir án endurgjalds hálftíma í senn. Bátarnir eru opnir frá kl. 10:00 til 20:30. Bátareglur hanga uppi framan við bátaskýlið. Kynnið ykkur þær vel áður en farið er út á bát.

Miðasala

Miðasala fer fram í Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK í síma 588 8899 og einnig í Vatnaskógi um verslunarmannahelgina.

Markmið KFUM og KFUK…

er að efla heilbrigði alls mannsins, til líkama, sálar og anda. Starf KFUM og KFUM er fyrir fólk á öllum aldri og fer fram víða um landið í sumarbúðum, æskulýðsmiðstöðvum og kirkjum. 

Skógarmenn KFUM…

standa fyrir starfi KFUM í Vatnaskógi. Í Vatnaskógi er starfsemi allt árið um kring. Á sumrin er boðið upp á vikudvöl fyrir drengi á aldrinum 9-17 ára. Boðið er upp á helgardagskrá fyrir feðga og feðgin, fjölskylduflokk að að vetri og Heilsudaga karla í september. Á veturna eru fermingarnámskeið, leikskóladagskrá og skólabúðir í Vatnaskógi.

Reglur á Sæludögum

  • Allir eiga að fá að njóta dvalarinnar. Sýnum tillitssemi og nærgætni í öllum samskiptum.
  • Vatnaskógur er friðlýst skógræktarsvæði. Gangið því vel um og látið allt rusl í þar til gerða dalla.
  • Stranglega er bannað að vera með opinn eld. Þó má að sjálfsögðu nota grill af varkárni.
  • Um bátana gilda ákveðnar reglur sem þátttakendur verða að virða. Kynnið ykkur (og börnum ykkar) reglurnar áður en þið farið út á bát.
  • Í Vatnaskógi er ekki gert ráð fyrir mikilli bílaumferð. Ökum því varlega og geymum bílana á malarvellinum, vestan megin við íþróttasvæðið.
  • Sú venja ríkir í Vatnaskógi að ef einhver verður valdur að tjóni, bætir viðkomandi fyrir það.
  • Óheimilt er að vera með hunda eða önnur dýr innandyra.
  • Reykingar eru stranglega bannaðar innandyra.
  • Neysla og meðhöndlun áfengis og annarra vímuefna er stranglega bönnuð og varða brottrekstri af svæðinu.

 

Dagskrá Sæludaga 2012

Fimmtudagur

19:00 Svæðið opnar

19:00 Grillin heit við Matskála

20:00 Leiktæki opna

20:00 Bátar opna

20:30 Leikir í sal Gamla skála

22:00 Tónlist og spjall í Café Lindarrjóðri

23:30 Bænastund í Kapellu

Föstudagur

9:00 Morgunverðarhlaðborð í Matskála – Verð kr. 500.-

10:00 Fánahylling við Gamla skála/bænastund í Kapellu

11:00 Barnastund í sal Gamla skála – sögur, föndur, leikir

12:00 Matur til sölu í Matskála – Súpa og brauð, verð kr. 500.-

13:30 Skoðunarferð um Vatnaskóg

15:00 Knattspyrna á íþróttavelli

16:00 Café Lindarrjóður – Fræðsla/umræður: Á kirkjan framtíð? Hugleiðingar og spjall

Umsjón Halldór Elías Guðmundson

18:00 Grillin heit við Matskálann. (Hægt að kaupa á grillið).

21:00 Kvöldvaka í íþróttahúsinu

Atriði úr „Allt í plati” sýnt.

22:00 Tilviljun? – órafmögnuð í Café Lindarrjóðri

23:00 Unglingadagskrá í umsjá KSS

Laugardagur

9:00 Morgunverðarhlaðborð í Matskála – Verð kr. 500.-

10:00 Fánahylling við Gamla skála/bænastund í Kapellu

10:00 Skráning og upphitun fyrir gospelkór í sal Gamla skála

10:15 Hreyfing fyrir alla, Zumba – við Matskálann

10:45 Barnastund í Íþróttahúsi – Leikritið „Allt í Plati” sýnt, umsjón Ten sing – Iceing

11:00 Café Lindarrjóður -  Fræðsla/umræður: Litla gula hænan og kristniboðið

Umsjón: Karl Jónas Gíslason kristniboði

12:00 Matur til sölu í Matskála – Pizza kr. 600.-

13:30 Vatnafjör við bátaskýli

14:00 Leitin að gáfuðustu fjölskyldunni í Matskála

14:30 Skráning vegna Söng- og hæfileikasýningu barnanna á efri hæð íþróttahússins

15:00 Knattspyrnuhátíð á knattspyrnuvellinum

- 15:00 Knattspyrna fyrir 12 ára

- 15:00 Knattspyrna fyrir 13-17 ára

- 16:00 Vítakeppni, vítakóngur – og drottning krýnd

- 16:30 Fótbolti fyrir fullorðna

15:30 Gamli Skáli – Fræðsla/umræður: Góði hirðirinn og leiguliðinn – Bankahrun og lærdómurinn um ábyrgð

Umsjón: Gunnlaugur Jónsson höfundur bókarinnar Ábyrgðarkver

15:30 Fjölskyldubingó í íþróttahúsi, glæsilegir vinningar

16:00 Kassabílarallý á íþróttavelli (2 í hverju liði)

17:00 Gospelsmiðja fyrir 6 ára og eldri í sal Gamla skála

18:00 Grillin heit við Matskálann.

Grillað gæðalambalæri og meðlæti til stuðnings nýjum skála í Vatnaskógi.

20:00 Kvöldvaka í íþróttahúsinu

21:00 Ljúfir tónar í Café Lindarrjóðri

22:00 Tónleikar: Hundur í óskilum,

23:00 Dansleikur: Harmónikkufjör og Hljómsveitin Tilviljun?

23:30 Bænastund í Kapellu

Sunnudagur

9:00 Morgunverðarhlaðborð í Matskála – Verð kr. 500.-

10:00 Fánahylling við Gamla skála/bænastund í Kapellu

10:15 Hreyfing fyrir alla, Zumba – við Matskálann

11:00 Fjölskylduguðsþjónusta í Íþróttahúsi

12:00 Matur til sölu í Matskála – Lasagna kr. 700.-

13:00 Gönguferð með leiðsögn, lagt af stað frá Gamla Skála

14:00 Gamli skáli – fræðsla/umræður: Biblíulestur: Fyrri hluti Daníelsbókar

Umsjón sr. Guðmundur Karl Brynjarsson

14:00 Sæludagaleikarnir á íþróttavellinum

15:30 Gamli skáli – fræðsla/umræður: Ljósmyndirnar mínar – atvinna og áhugamál

Haraldur Guðjónsson blaðaljósmyndari

16:30 Söng – og hæfileikasýning barnanna í íþróttahúsi

18:00 Grillin heit við Matskálann. Hægt að kaupa á grillið á vægu verði

20:00 Kvöldvaka í Íþróttahúsinu

21:00 Ljúfir tónar á Café Lindarrjóðri

23:00 Lofgjörðarstund – Altarisganga

00:00 Varðeldur og fleira

Mánudagur

11:00 Lokasamvera í Gamla skála

13:30 Heimferð með rútu.