Leikjanámskeið

KFUM og KFUK verður með leikjanámskeið í júní og fyrstu vikuna í júlí í Hjallakirkju í Kópavogi. Þá verða leikjanámskeið á vegum KFUM og KFUK í Reykjanesbæ í júní.

Markmið leikjanámskeiðanna er að bjóða börnum á aldrinum 6-9 ára upp á metnaðarfullt sumarstarf þar sem lögð er áhersla á aukinn þroska líkama, sálar og anda. Mikið er lagt upp úr því að mæta hverju barni á eigin forsendum og því mikil áhersla lögð á vináttu, kærleika, virðingu hvert fyrir öðru og unnið með kristið siðferði í hugsunum, orðum og gjörðum.

Á hverjum degi er boðið upp á skemmtilega og fjölbreytta dagskrá. Má þar nefna útivist, föndur, íþróttir, ferðir, leiki og fræðslu um lífið og tilveruna út frá kristilegu sjónarmiði. Lögð er áhersla á að hvert barn fái að njóta sín sem best við leiki og störf.

Hver vika á leikjanámskeiðinu kostar 8.700 kr. (1740 kr. dagurinn). Veittur er 10% systkinaafsláttur. Í námskeiðsgjaldi felst allur kostnaður við námskeiðin, m.a. ferðakostnaður og föndurefni. Börnin hafa sjálf með sér nesti.

Námskeiðin standa frá kl. 9-16 en boðið er upp á gæslu frá kl. 8-9 og 16-17 gegn 1.500 kr. gjaldi fyrir vikuna.

Netskráning leikjanámskeiða.

Athugið: Óskilamunir frá leikjanámskeiðum KFUM og KFUK í Hjallakirkju hafa nú borist í hús KFUM og KFUK að Holtavegi 28 í Reykjavík. Velkomið er að vitja óskilamunanna alla virka daga milli kl.9 og 17.