Nýtt í Kaldárseli sumarið 2013 – Sirkus-leikjanámskeið
Í sumar verðum við með sirkusnámskeið í Kaldárseli. Foringjarnir okkar munu njóta leiðsagnar þjálfara frá einum stærsta barna- og unglingasirkus Norðurlanda SIRKUS FLIK-FLAK frá Óðinsvéum. Þar verður gengið á stultum, hjólað á einhjólum ásamt æfingum á fjölbreyttum sirkusleiktækjum.
Um Kaldársel
Sumarbúðirnar í Kaldárseli eru í hrauninu ofan við Hafnarfjörð. Þar er fjöldi hella og ævintýralegra staða sem vert er að skoða. Í Kaldárseli er skemmtilegt útivistar- og leiksvæði, meðal annars í hrauninu við skálann. Fjölbreytt dagskrá er í boði allan daginn, skipulögð fyrir börn eins og hæfir hverju aldursbili. Að morgni dags er samverustund með fræðslu og söngvum. Frjáls tími og vönduð dagskrá að deginum til. Á kvöldvöku bregða börn og starfsfólk á leik og syngja saman. Þá er hugleiðing út frá orði Guðs í Nýja testamentinu um kristna trú og persónu Jesú Krists. Í Kaldárseli er leitast við að efla og ýta undir góð mannleg samskipti með uppbyggilegri leiðsögn sem miðar að því að gera börnin meðvituð um góð gildi í lífinu, virkjuð athafnaþrá, leikgleði og sköpunarþörf hvers og eins, með náungakærleikann að leiðarljósi. Í hverjum flokki geta dvalist um 40 börn.
Hjá Kaldárseli rennur Kaldá sem gefur staðnum skemmtilegan svip og tækifæri til að vaða á hlýjum dögum eða sigla litlum duggum. Í næsta nágrenni við Kaldársel eru spennandi staðir, svo sem vinin Valaból, eldstöðin Búrfell, móbergsfjallið Helgafell, ýmsir hellar, skóglendi og önnur útivistarsvæði sem gaman er að skoða.
Í Kaldárseli eru stundaðar ýmsar íþróttir eins og fótbolti, frjálsar íþróttir, brennibolti, borðtennis, körfubolti, krikket, skotbolti og að ganga á stultum. Þá er góður íþróttasalur til að leika og keppa í þegar illa viðrar úti. Í Kaldárseli er lögð áhersla á útiveru og gönguferðir.
Skálinn í Kaldárseli er tvískiptur. Í vestari hluta er eldhús, matsalur, salernisaðstaða, tveir svefnsalir, auk þriggja minni herbergja. Í austari hluta er íþróttasalur, tómstundaherbergi, kvöldvökusalur, svefnsalur, tvö svefnherbergi, salernisaðstaða og geymslur. Elsti hluti skálans er frá 1925 en tvisvar hefur verið byggt við hann.
Skálasjóður Kaldársels
Skálasjóður Kaldársels er einn af elstu sjóðum KFUM og KFUK. Sérstök söfnun stendur nú yfir til að bæta aðstæður sumarbúðanna í Kaldárseli. Við þökkum kærlega allar þær góðu gjafir sem borist hafa í sjóðinn.
Vilt þú taka þátt í endurbótum og uppbyggingu sumarbúðanna í Kaldárseli?
Rn: 515-14-404800
Kt:480883-0209.

