Innskráning

Fundaraðstaða og veislur í Vindáshlíð í Kjós

Í Vindáshlíð er kjörið að halda fundi eða veislur fjarri skarkala borgarinnar. 

Fundaraðstaða er fyrir 10-80 manns.  Á neðri hæð er 100 fm salur með upphækkuðu sviði, ræðupúlti, píanói, skjávarpa og sýningartjaldi.  Þar eru einnig fjögur smærri fundarherbergi.

Á aðalhæð er 70 fm matsalur sem tekur áttatíu manns í sæti.  Úr matsal er innangengt í 30 fm hlýlega setustofu.

Eldhúsið er búið allra nýjustu tækjum.  Vindáshlíð getur útvegað léttar máltíðir og kaffiveitingar ef óskað er.

Ferðalag í Vindáshlíð að vetri til

Vindáshlíð í Kjós býður upp á skemmtilega aðstöðu fyrir börn í leik og starfi.  Tilvalið er fyrir barnakóra, skóla, íþróttafélög og hvers konar æskulýðsfélög að nýta aðstöðu Vindáshlíðar þegar haldið skal út fyrir bæinn.
Í íþróttahúsi er leikvöllur, þythokkíborð, snókerborð, borðtennisborð og fótboltaspil. 
Úti við íþróttahúsið eru nokkrar rólur.  Auk þess eru í skógivöxnu kjarri aparóla, apabrú og lítill skógarkofi.  Í aðalbyggingu eru allskonar spil og bækur.

Í Vindáshlíð eru ellefu svefnherbergi með svefnpokaplássi fyrir 6-8 manns í góðum kojum.  Á aðalhæð er auk þess 70 fm matsalur sem tekur áttatíu manns í sæti.  Eldhúsið er búið allra nýjustu tækjum.  Vindáshlíð getur útvegað léttar máltíðir og kaffiveitingar ef óskað er.

Á neðri hæð er 100 fm salur með upphækkuðu sviði, ræðupúlti, píanói, skjávarpa og sýningartjaldi.  Þar eru einnig fjögur smærri herbergi sem hægt er að nýta á ýmsan hátt svo sem í hópavinnu.

Í Vindáshlíð er lítil kirkja.  Hún tekur 60 manns í sæti.  Vinsamlega látið skrifstofu vita ef óskað er eftir aðgangi að henni.

Gjaldskrá og nánari upplýsingar

Gjaldskrá frá 1. Janúar 2011

 

Eldra hús:  Gisting fyrir 28-30 manns

1 nótt= 65.000 kr.

2 nætur = 115.000 kr.

Ef óskað er eftir þrifum bætist við kr. 30.000.-

 

Allt húsið.  Gisting fyrir 90 manns:

1 nótt= 130.000 kr.

2 nætur = 230.000 kr.

Ef óskað er eftir þrifum bætist við kr. 50.000

 

Leiga á íþróttahúsi er kr. 15000.-

Nánari upplýsingar og skráning í síma 588 9209