Innskráning

Upplýsingar fyrir þátttakendur

Textinn hér fyrir neðan í PDF skjali.

Mikilvægar upplýsingar fyrir foreldra og forráðamenn

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

Við bjóðum barnið þitt velkomið í sumarbúðir KFUM og KFUK í Vindáshlíð.
Það er markmið okkar að barninu líði vel í sumarbúðum okkar.

Hér eru nokkrar hagnýtar upplýsingar:

1. Farangur

Eftirfarandi upptalning gefur hugmynd um nauðsynlegan farangur:

Sæng eða svefnpoki, koddi, lak, regnföt, úlpa, stígvél, íþróttaskór, lítill bakpoki og vatnsbrúsi f. lengri gönguferðir, inniíþróttaskór, nærföt, nægir sokkar, peysur, trefill, húfa, vettlingar, buxur, betri fatnaður, sundföt, handklæði, sápa, tannbursti, tannkrem og Nýja testamenti. Ekki er þvegið af börnunum í sumarbúðunum.

ÁRÍÐANDI: Fólk er beðið um að takmarka farangur við nauðsynlega hluti og láta fara eins lítið fyrir sængurfötum og kostur er vegna pláss í rútu.

2. Fatamerking

Áríðandi er að merkja greinilega allan farangur og töskur með símanúmeri þátttakenda. Föt og aðrar eigur þátttakenda eru á ábyrgð þeirra sjálfra og verða ekki bættar ef eitthvað glatast eða skemmist. Gott er að gera nákvæman lista yfir farangur barnanna til að auðvelda þeim að pakka niður til heimferðar.

3. Óskilamunir

Hægt er að vitja óskilamuna í Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK við Holtaveg 28.
Eftir 1. október áskilja sumarbúðirnar sér rétt til að ráðstafa ósóttum óskilamunum. Vegna þess hve mikið hefur verið um óskilamuni síðastliðin ár viljum við brýna fyrir foreldrum að nálgast óskilamuni eins fljótt og auðið er.

4. Lyf / læknisvottorð

Ekki þarf að koma með læknisvottorð, nema eins og segir í reglugerð: „Þeim börnum sem eiga við einhvers konar veikindi að stríða skal fylgja læknisvottorð þar sem fram komi upplýsingar um veikindin og skýr fyrirmæli læknis um meðferð, lyfjagjöf o.s.frv."

Ef barnið tekur lyf, látið skriflegar leiðbeiningar fylgja með lyfinu og afhendið starfsmanni sumarbúðanna við brottför. Það sama á við ef eitthvað annað sérstakt gæti skipt máli varðandi heilsu barnsins og líðan.

5. Brottför - heimkoma:

Farið er frá húsi KFUM og KFUK, Holtavegi 28, kl. 10:00 og heimkoma á sama stað um kl. 12.00
Þeir sem kjósa að koma með og/eða sækja börn sín í sumarbúðirnar, í stað þess að nýta sér rútuferð, komi ekki með börnin fyrr en kl. 11:00 þann dag sem dvöl hefst og sæki þau ekki seinna en kl. 11:00 á brottfarardag.

6. Athugið

Vegna hættu á skemmdum eða slysum er þátttakendum óheimilt að hafa með sér hnífa eða önnur hættuleg tæki í sumarbúðirnar. Þátttakendur eru skaðabótaskyldir vegna skemmda sem þeir kunna að valda. Síma og önnur dýr tæki er einnig óheimilt að taka með.

Sælgæti má ekki taka með í Vindáshlíð.

7. Fyrirspurnir:

Ef foreldrar vilja spyrjast fyrir um börn sín á meðan á dvölinni stendur er hægt að hringja í síma 566 7044 og ræða við starfsfólk. Símatími er kl. 11:30-12:00. Vinsamlega athugið að heimsóknir til barnanna eru ekki æskilegar.

Fréttir og myndir úr sumarbúðunum eru hér á heimasíðunni. 

8. Geisladiskar og póstkort

Geisladiskar með Vindáshlíðarlögunum verða seldir í Vindáshlíð á meðan birgðir endast, diskurinn kostar kr. 1500. Einnig eru seld kort með myndum af Vindáshlíð og frímerki ef börnin vilja senda til vina og ættingja. Verð fyrir kort og frímerki er kr. 200.

Athugið að nauðsynlegt er að hafa samband við Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK í síma 588-8899 ef forráðamenn velja að fylgja börnum í sumarbúðirnar, og tilkynna það.