Innskráning

Sumarbúðirnar Vindáshlíð

Hvað gerum við í Vindáshlíð?

Umhverfið býður upp á fjölbreytta útiveru, svo sem gönguferðir upp á Sandfell, að Selárfossi (Brúðarslæðu) og að Pokafossi. Þar er einnig hægt að fara í spennandi skógarleiki, ratleik og réttarleik. Í íþróttahúsinu  er keppt í brennó í hverjum flokki. Þar eru þythokkí og borðtennisborð og fótboltaspil og þar má líka mála, leira og búa til skartgripi þegar illa viðrar. Rétt við íþróttahúsið er að finna apabrú og aparólu sem gaman er að sveifla sér og lítinn skógarkofa.

Hver flokkur í Vindáshlíð er yfirleitt vika í senn og hefur hver dagur ákveðið skipulag. Daglega er veitt fræðsla um kristna trú og Biblíuna, kenndar bænir og sungnir söngvar. Á hverju kvöldi eru kvöldvökur þar sem stúlkurnar skemmta hver annarri. Stundum er kveiktur varðeldur úti og grillaðar pylsur.
Ævintýraflokkar eru upplifun fyrir 11 – 13 ára stelpur þar sem óvæntar uppákomur og frávik frá hefðbundinni dagskrá geta mætt þeim hvenær sem er. Venjulegur dagur í Vindáshlíð getur litið út með eftirfarandi hætti.

 

09:00 Vakið

15:30 Kaffi

09:30 Morgunmatur og fánahylling

Undirbúningur fyrir kvöldvökur, brennókeppni, íþróttir, frjáls tími

10:00 Biblíulestur

18:45 Kvöldmatur

10:40 Brennókeppni milli herbergja, íþróttir, frjáls tími

Frjáls tími

12:30 Matur

20:15 Kvöldvaka

Val tími

Kvöldkaffi

Hugleiðing


Aðstaðan í Vindáshlíð

Aðalskáli (frá 1951)
Skálinn í Vindáshlíð er á tveimur hæðum. Á neðri hæð er mjög vel búið eldhús, stór matsalur, setustofa, þrjú herbergi og salernisaðstaða. Á efri hæð eru starfsmannaherbergi og salernisaðstaða. Í kjallara er geymsluaðstaða og þvottahús.

Viðbygging við aðalskála (frá 2003)

Viðbyggingin er 540 fm og skiptist í hæð og kjallara. Í kjallara er mjög góður tómstundasalur auk geymslu, þvottahúss og fleira. Á efri hæð eru átta svefnherbergi, starfsmannaherbergi og salernisaðstaða.

Fellin
Starfsmannabústaður með gistirými fyrir tíu manns.

Íþróttahúsið
Gott íþróttahús er í Vindáshlíð.  Þar er farið í brennókepnnir milli herbergja, körfubolta, fótbolta og ýmsa aðra leiki.   Í íþróttahúsi er góð fönduraðstaða, þythokkíborð, borðtennisborð, snóker, fótboltaspil og ýmislegt fleira spennandi.  Sturtuaðstaða er í húsinu.

Kirkjan
Kirkjan á staðnum er gamla Hallgrímskirkjan sem var á Saurbæ við Hvalfjarðarströnd. Hún var reist árið 1878 en flutt í Vindáshlíð 1957 og hefur þjónað þar síðan sem helgistaður fyrir þátttakendur í sumarbúðunum í Vindáshlíð.