Innskráning

Fjölskylduflokkur í Vindáshlíð!

09.02.10

Eftir: Hólmfríður Petersen

Fjölskylduflokkur í Vindáshlíð!

Fjölskylduflokkur verður haldin í Vindáshlíð helgina 26.-28. febrúar 2010.  Fjölbreytt dagskrá við alla hæfi.  Meðfylgjandi eru upplýsingar um dagskrá, verð og fleira:

Föstudagur 26. febrúar

 19:00  Kvöldmatur

20:00  Kvöldvaka í umsjón Hlíðarmeyja

21:30  Kvöldkaffi

            Bænastund í kapellu í umsjón Rúnu Þráinsdóttur.

            Íþróttahúsið opið

 

Laugardagur 27. febrúar

 09:00 Vakið

09:00 – 09:55 Morgunmatur

10:00  “Heilbrigð sál í hraustum líkama” fyrirlestur og hugleiðing í umsjón Laufeyjar Gísladóttur, kennara og einkaþjálfara.

10:00  Stund fyrir börnin í umsjón Hjördísar Kristinsdóttur, kennara.

12:00  Hádegismatur

13:00  Frjáls tími.  Möguleikar:

            *Ganga  Félagar úr gönguhópnum “Fúsir flakkarar” leiða hópinn.

            *Íþróttahúsið opið

*Föðurímyndir í Disney teiknimyndum út frá kynjafræðinni.  Nanna Björk *Rúnarsdóttir kynnir niðurstöður B.A. ritgerðar.

 * Skíði í Skálafelli ef veður leyfir.

 15:00  Kaffitími

15:30  Brennó

            Undirbúningur fyrir kvöldvöku

            Afslöppun

            Veisluförðun:  Kamilla Hildur Gísladóttir, förðunarfræðingur, kynnir grunnþætti förðunar og gefur góð ráð.

18:30   Veislumatur

20:00   Kvöldvaka.  Ótrúlega skemmtileg!

21: 15  Kirkjan opin!

21: 30  Kvöldkaffi og lifandi tónlist  Helga Rut Guðmundsdóttir, lektor í tónmennt við H.Í.

 

Sunnudagur 28. febrúar

 

09:00  Vakið

09:00-10:00  Morgunmatur

11:00  Guðsþjónusta í kirkjunni í umsjón Ragnhildar Ásgeirsdóttur, djákna og kennara.

12:15  Hádegismatur

13:30  Heimferð

 

 Verð

 8000 krónur á mann 14 ára og eldri.

5500 krónur á mann 6-13 ára

Frítt fyrir börn á leikskólaaldri

Innifalið: gisting, dagskrá og fullt fæði.

Nánari upplýsingar og bókanir á www.kfum.is og í síma 588 8899

 

Stjórnandi: Hjördís Kristinsdóttir

Tónlist: Helga Rut Guðmundsdóttir

Matráður: Sólrún Ásta Steinsdóttir

 

Nauðsynlegur farangur:

Sæng/svefnpoki, koddi lak, regnföt, úlpa, stígvél/gönguskór, nærföt, sokkar, peysur, trefill, húfa, vettlingar, buxur, handklæði, sápa, tannbursti, tannkrem, inniíþróttaskór.

 Aðrar upplýsingar:

Vindáshlíð er æskulýðsmiðstöð KFUM og KFUK, staðsett í Kjós í um 45 km aksturfjarlægð frá Reykjavík.

Fundaraðstaða er fyrir 80 manns.  Á neðri hæð er 100 fm salur með upphækkuðu sviði, ræðupúlti, píanói, skjávarpa og sýningartjaldi.  Þar eru einnig fjögur smærri herbergi.  Á aðalhæð er 70 fm matsalur sem tekur áttatíu manns í sæti.  Úr matsal er innangengt í 30 fm hlýlega setustofu. Gistirými er fyrir um 100 manns.

Umhverfið býður upp á fjölbreytta útiveru, svo sem gönguferðir upp á Sandfell, að Selárfossi (Brúðarslæðu) og að Pokafossi.  Einnig er hægt að fara í spennandi skógarleiki, ratleiki og réttarleik.

Stutt er í skíðasvæðið við Skálafell!

 

 

Flokkur: Vindáshlíð