Vatnið, skógurinn og fjöllin kring veita óteljandi möguleika til leikja og útiveru.
Bátsferðir, stangveiði, skógarferðir, gönguferðir, knattspyrna, körfubolti, frjálsar íþróttir, bandý, hermannaleikur og borðtennis er meðal þess sem boðið er upp á í Vatnaskógi.
Á sumarbúðasvæðinu er mjög góð aðstaða til íþróttaiðkunar, góðir fótboltavellir og aðstaða til frjálsíþrótta. Í Vatnaskógi er auk þess glæsilegt íþróttahús sem er mikið notað. Sérhannaðir kassabílar hafa líka notið mikilla vinsælda.
Öll kvöld eru kvöldvökur þar sem er sungið og brugðið á leik, auk þess sem kafli úr Guðs orði er hugleiddur kvölds og morgna.
Venjulegur dagur í Vatnaskógi getur litið út með eftirfarandi hætti:
08:30 Vakið | 15:00 Kaffi |
09:00 Morgunverður | Frjáls tími, val |
09:30 Biblíulestur | 18:00 Kvöldmatur |
10:15 Frjáls tími, val | Frjáls tími, val |
12:00 Hádegisverður | 20:30 Kvöldhressing |
Frjáls tími, val | 21:00 Kvöldvaka |
Gamli skáli er elsta hús staðarins (vígður 1943) með gistirými fyrir 48 dvalargesti í þremur svefnsölum og tveimur minni herbergjum. Í skálanum er kvöldvökusalur fyrir rúmlega 100 manns með arni, hljóðfærum og skjávarpa.
Birkiskáli er nýjasta hús staðarins, tekinn í notkun árið 2000. Þar er gistirými fyrir 64 dvalargesti í þrettán herbergjum. Þar er góð sturtuaðstaða. Tvær setustofur eru í húsinu, önnur fyrir 20 manns og hin fyrir 10.
Matskálinn er með matsal sem tekur yfir 100 manns í sæti og eldhús sem búið er fullkominni eldunar- og uppþvottaaðstöðu.
Íþróttahús er með 350 fm íþróttasal, góðum íþróttadúk á gólfi og 6 m lofthæð. Þá er í húsinu notaleg setustofa og leiksvæði með ýmsum leiktækjum. Góð sturtuaðstaða er í íþróttahúsinu. Við íþróttahúsið eru einnig heitir pottar.
Bátaskýli er við Eyrarvatn. Í því eru geymdir bátar sem vinsælt er að nýta til fiskveiða og annarrar skemmtunar á sumrin.
Kapellan er lítið og fallegt bænahús í rjóðri rétt hjá Gamla skála. Fallegur upplýstur göngustígur liggur að kapellunni.
Íþróttaaðstaða
Auk íþróttahúsins í Vatnaskógi eru íþróttasvæði með þremur grasvöllum, malarvelli, hlaupabraut, kastaðstöðu, stökkgryfju og hjólabrettapalli.
Leiktæki
Leiktæki eru af ýmsum toga. Má þar nefna kassabíla, stultur, bolta, töfl og spil af ýmsum gerðum.
Innan girðingar í Vatnaskógi er um 220 hektara skógur (hæstu tré um 10 metrar) og liggja stígar um skóginn. Fjölfarinn stígur liggur inn að eyðibýlinu Oddakoti sem er við austurenda Eyrarvatns. þangað er um 20 mínútna gangur úr Lindarrjóðri, en svo heitir svæðið næst húsunum í Vatnaskógi. Í nágrenni Vatnaskógar eru einnig margir skemmtilegir fossar og fjöll.