Við viljum hvetja mótsgesti til að hjálpa okkur að gera Sæludaga enn betri á næsta ári með því að svara stuttri könnun um helgina á slóðinni http://www.surveymonkey.com/s/PKVDQ9Q.
Velkomin í Vatnaskóg um verslunarmannahelgina
Skógarmenn KFUM ásamt KFUM og KFUK á Íslandi standa fyrir fjölskylduhátíð um verslunarmannahelgina undir heitinu Sæludagar í Vatnaskógi. Þessi hátíð hefur fest sig í sessi sem áhugaverður og vímulaus valkostur á þessari mestu ferðahelgi Íslendinga. Markmiðið með hátíðinni er að skapa heilbrigða og eftirsóknaverða hátíð á sanngjörnu verði þar sem höfðað er til ólíkra aldurshópa.
DAGSKRÁ SÆLUDAGA 2011 SMELLIÐ HÉRNA
ATHUGIÐ: Svæðið opnar á fimmtudagskvöldið 28. júlí. - sjá dagskrá
Verð
Verð á Sæludaga er kr. 4.000.- Ókeypis er fyrir 12 ára og yngri í fylgd með fullorðnum. Verð fyrir dagsheimsókn er kr. 2.000.-
Rafmagn á tjaldsvæðum
Boðið er upp á þann möguleika að tengjast rafmagni fyrir fellihýsi, tjaldvagna o.s.fr.v. Verð er kr. 1.500.- fyrir alla helgina (ekki fyrir mjög orkufrek tæki).
Rútuferðir
Rútuferð í Vatnaskóg verður frá Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK við Holtaveg í Reykjavík á föstudeginum kl. 17:30 og frá Vatnaskógi á mánudeginum kl. 13:30.
Verð er 2.500.- kr. báðar leiðir. Þeir sem hyggjast nýta sér rútufar eru beðnir að panta rútufar hjá Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK í síma 588-8899.
Matskálinn
Matskálinn er upplýsingamiðstöð Sæludaga. Þar er einnig verslun og matsala.
Café Lindarrjóður
Í Birkiskála II (nýbyggingu staðarins) er boðið upp á kaffihús, Café Lindarrjóður.
Gospelsmiðja fyrir 6 ára og eldri
Gospelsmiðja verður fyrir hressa krakka (6 ára og eldri). Æfð verða atriði og sýnd á kvöldvökunni á laugardagskvöldinu. Opnar æfingar verða: á föstudag kl. 19:30 og á laugardag kl. 12:30 og 17:00. Allir krakkar 6 ára og eldri velkomnir. Stjórnandi er Þóra Björg Sigurðardóttir.
Gospelkór fyrir 14 ára og eldri
Boðið verður upp á þátttöku í Gospelkór. Skráning og upphitun er á laugardeginum kl.11:00 í sal Gamla skála. Allir áhugasamir 14 ára og eldri eru velkomnir. Stjórnandi er Óskar Einarsson.
Steppdans
Á laugardagsmorguninn kl.11 verður steppdans kynntur í sal Íþróttahússins. Steppdans verður sýndur, en eftir sýninguna gefst gestum Sæludaga kostur á að spreyta sig sjálfir á dansinum með aðstoð leiðbeinenda. Umsjón er í höndum steppdanshóps þar sem meðlimir koma víðs vegar að úr heiminum.
Útigrill
Útigrill framan við Matskála eru til almennra afnota.Hægt er að kaupa á grillið í versluninni.
Bílastæði
Bílastæði eru vestan við íþróttavöllinn (á malarvelli). Vinsamlega leggið bílum þannig að þeir loki ekki akstursleiðum.
Miðasala
Miðasala fer fram í Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK í síma 588 8899 og einnig í Vatnaskógi um verslunarmannahelgina.
Markmið KFUM og KFUK...
er að efla heilbrigði alls mannsins, til líkama, sálar og anda. Starf KFUM og KFUM er fyrir fólk á öllum aldri og fer fram víða um landið í sumarbúðum, æskulýðsmiðstöðvum og kirkjum. Nánari upplýsingar um KFUM og KFUK er á vefsvæðinu www.kfum.is.
Skógarmenn KFUM...
standa fyrir starfi KFUM í Vatnaskógi. Í Vatnaskógi er starfsemi allt árið um kring. Á sumrin er boðið upp á vikudvöl fyrir drengi á aldrinum 9-17 ára. Boðið er upp á helgardagskrá fyrir feðga og feðgin, fjölskylduflokk að að vetri og Heilsudaga karla í september. Á veturna eru fermingarnámskeið, leikskóladagskrá og skólabúðir í Vatnaskógi.
Reglur á Sæludögum
- Allir eiga að fá að njóta dvalarinnar. Sýnum tillitssemi og nærgætni í öllum samskiptum.
- Vatnaskógur er friðlýst skógræktarsvæði. Gangið því vel um og látið allt rusl í þar til gerða dalla.
- Stranglega er bannað að vera með opinn eld. Þó má að sjálfsögðu nota grill af varkárni.
- Um bátana gilda ákveðnar reglur sem þátttakendur verða að virða. Kynnið ykkur (og börnum ykkar) reglurnar áður en þið farið út á bát.
- Í Vatnaskógi er ekki gert ráð fyrir mikilli bílaumferð. Ökum því varlega og geymum bílana á malarvellinum, vestan megin við íþróttasvæðið.
- Sú venja ríkir í Vatnaskógi að ef einhver verður valdur að tjóni, bætir viðkomandi fyrir það.
- Óheimilt er að vera með hunda eða önnur dýr innandyra.
- Reykingar eru stranglega bannaðar innandyra.
- Neysla og meðhöndlun áfengis og annarra vímuefna er stranglega bönnuð og varða brottrekstri af svæðinu.
Tveir búningsklefar ásamt sturtum eru í íþróttahúsinu. Annar klefinn er merktur konum en hinn körlum.
Salerni eru í flestum húsum á svæðinu. Vert er að athuga að salernin eru fyrir bæði kynin og er því fólk beðið um að sýna viðeigandi tillitssemi.
Ruslatunnur eru staðsettar á tjaldstæðunum. Ruslagámur er staðsettur fyrir aftan Matskálann.
Bátar
Bátar eru lánaðir án endurgjalds hálftíma í senn. Bátarnir eru opnir frá kl. 10:00 til 20:30. Bátareglur hanga uppi framan við bátaskýlið. Kynnið ykkur þær vel áður en farið er út á bát.