Gullmerki Vatnaskógar
Gullmerki Skógarmanna KFUM er veitt einstaklingum sem reynst hafa starfinu í Vatnaskógi framúrskarandi vel. Það er hugsað sem táknrænn þakklætisvottur fyrir óeigingjörn störf, hlý kveðja frá öllum þeim sem notið hafa góðs af þeim kærleiksverkum sem þessir einstaklingar hafa lagt af mörkum til starfsins.
Margir aðrir velunnarar Vatnaskógar sem gengnir eru, konur og karlar, hefðu einnig átt skilið að fá gullmerki Skógarmanna. Blessuð sé minning þeirra.
Kristján Sighvatsson
Kristján Sighvatsson (1884-1974) var útnefndur heiðursfélagi Skógarmanna áður en Gullmerki Skógamanna kom til sögunnar. Kristján var leiðtogi í fyrsta hópnum sem kom í Vatnaskóg 1923 og studdi starfið með ráð og dáð alla ævi.
Til þessa hafa alls ellefu einstaklingar fengið gullmerki Skógarmanna. Þeir eru:
Afhent 1983
Kristín Guðmundsdóttir (1914–2005). Ráðskona í Vatnaskógi í 40 ár (1944–1983).
Afhent 2. júlí 1999 þegar 1. áfangi Birkiskála I var tekinn í notkun:
Árni Sigurjónsson (1916–1999). Í stjórn Skógarmanna 1936–1974, þar af formaður 1947–1972. Fleyg orð: „Vatnaskógur var mér ástríða!“
Ástráður Sigursteindórsson (1915 –2003). Í stjórn Skógarmanna 1936–1951, þar af formaður 1936–1947. Í forsvari þegar Gamli skáli var reistur 1939–1943.
Jónas Guðmundsson (f. 1944). Vinnuvélastjóri Bjarteyjarsandi. Gaf Skógarmönnum jarðvinnu við endurbyggingu íþróttasvæðis (1990–1993) og grunn fyrri álmu Birkiskála (1995–1996). - Reyndar gaf Jónas einnig jarðvinnu við grunn seinni álmu Birkiskála (2007-2008)
Afhent 15. september 2000 við verklok á Birkiskála I :
Friðbjörn Agnarsson (1934 –2007). Í stjórn Skógarmanna 1955–1983, þar af formaður 1972–1983. Aðalhvatamaður að byggingu íþróttahúss og Lerkiskála.
Hafsteinn Halldórsson (f. 1939). Í stjórn Skógarmanna 1965–1983. Sá um rafmagnsmál staðarins til fjölda ára.
Leifur Hjörleifsson (f. 1935). Í stjórn Skógarmanna 1957–1977, þar af varaformaður 1959–1977. Yfirsmiður, ásamt Guðbjarti Andréssyni, að matskálanum sem reistur var 1964–1968.
Sverrir Axelsson (f. 1927). Í stjórn Skógarmanna 1974–1979. Lagði og hafði um árabil umsjón með veitukerfi staðarins.
Afhent 17. febrúar 2007 á 60 ára afmælidegi Stefáns:
Stefán Sandholt (f. 1947). Í stjórn Skógarmanna 1983–2000.
Afhent 25. október 2007 á 75 ára afmælisdegi Kristjáns:
Kristján Búason (f. 1932). Starfaði um tíma við hlið Magnúsar Runólfssonar í Vatnaskógi og sem forstöðumaður í þrjátíu flokka 1977–1983. Hann mótaði sumarstarfið á þessum árum og kom með ýmsar nýjungar sem starfið býr enn að.
Afhent 9. maí 2009 á risgjöldum Birkiskála II:
Bjarni Ólafsson (f. 1923). Í stjórn 1944–1950. Teiknaði og tók þátt í að byggja kapelluna sem vígð var 24. júlí 1949 og bátaskýlið sem reist var 1956–1962.