Innskráning

Netskráning sprakk undan álagi

20.03.2010
Eftir: Ástríður Jónsdóttir

Netskráning í sumarbúðir KFUM og KFUK liggur tímabundið niðri, verið er að finna lausn á vandanum og verður opnað fyrir netskráningu aftur eins fljótt og auðið er.

Þetta er í fyrsta sinn sem boðið er upp á netskráningu í sumarbúðirnar. Þrátt fyrir að KFUM og KFUK hafi gert margs konar álagspróf á kerfinu síðustu vikur varð álagið fyrstu mínútur skráningar einfaldlega of mikið.

KFUM og KFUK biðst afsökunar á þessum hnökrum.

Flokkur: Vatnaskógur, Hólavatn, Ölver, Vindáshlíð, Kaldársel, Leikjanámskeið