Innskráning

Heilsudagar karla í Vatnaskógi 17.-19. september

17.08.2010
Eftir: Ársæll Aðalbergsson

Helgina 17.-19. september verða Heilsudagar karla haldnir í Vatnaskógi.  Heilsudagar eru ætlaðir körlum á aldrinum 17-99 ára.  Tilgangur þeirra er að styrkja líkama, sál og anda.  Líkaminn er styrktur með þátttöku í íþróttum, gönguferðum og vinnu í þágu Vatnaskógar.  Andinn og sálin eru styrkt með erindum, bænastundum, kvöldvöku og messu.

Verð á Heilsudaga karla er kr. 6.900. Hægt er að ganga frá skráningu á http://skraning.kfum.is eða í síma 588-8899.

Dagskrá Heilsudaga 2010

Föstudagur 17. september
16:00 Golfmót "VATNASKÓGUR OPEN" Leikið verður á Þórisstöðum* (fyrir þá sem vilja) - Umsjón: Jón Ómar Gunnarsson
19:00 Léttur kvöldverður
20:00 Erindi - "Glíman við Guð": Árni Bergmann rithöfundur
21:30 Hreyfing: Innibolti, göngutúr, borðtennis, skák...
23:00 Kvöldhressing
23:30 Pælingar - Sigurbjörn Þorkelsson
24:00 Bænastund í kapellu
00:30 Gengið til náða

Laugardagur 18. september
08:00 Vakið
08:20 Müllersæfingar og fánahylling
08:30 Morgunmatur
09:00 Biblíulestur - sr. Bjarni Þór Bjarnason
10:00 Vinnutími í þágu Vatnaskógar
11:00 "Ellefukaffi"
12:00 Matur
12:30 Höllun
13:00 Vinnutími í þágu Vatnaskógar
15:30 Kaffi
16:30 Fótboltaleikur, slökun í heitu pottunum ofl.
19:00 Hátíðarkvöldverður
20:30 Hátíðarkvöldvaka 
          - Uppafsorð: Sverrir Axelsson
          - Sjónvarp Lindarrjóður
          - Vatnaskógur fyrir daga KFUM. Umsjón: Þórarinn Björnsson
          - Söngur: Bylgja Dís Gunnarsdóttir sópran og Erla Björg Káradóttir sópran
          - Hugvekja:
22:30 Kvöldkaffi

Sunnudagur 19. september
09:00 Vakið
09:20 Müllersæfingar og fánahylling
09:30 Morgunmatur
10:00 Rútuferð í Lundareykjadal
11:00 Messa í Lundi í Lundareykjadal- sr. Flóki Kristinsson
12:30 Hádegismatur
14:00 Heimferð

*Á föstudeginum verður í boði golfmót fyrir áhugasama. Leikið verður á golfvelli Þórisstaða sem er næsti bær til austurs við Vatnaskóg Tilkynna þarf sérstaklega ef menn hyggjast taka þátt hjá: jonomar(hjá)kfum.is eða í síma 866-7917.
Vallargjald kr. 1.500.- þarf að greiða sérstaklega.

Dagskráin gæti tekið breytingum þegar nær dregur.

Vinna í þágu Vatnaskógar

1.     Nýir bekkir settir saman fyrir nýja setustofu í Birkiskála.

2.     Skógur grisjaður, tjaldflatir stækkaðar, eldiviður hogginn.

3.     Bókasafn Vatnaskógar yfirfarið.

4.     Trjásnyrtingar, fíflastungur o.fl.

5.     Vinna við Birkiskála II, þakkantur o.fl.

6.     Skipt um glugga í anddyri íþróttahússins.

7.     Brunnar á göngustíg hækkaðir.

8.     Átakið “Speglum fjölgað í Vatnaskógi”.

9.     Rafmagnskapall grafinn niður.

10.   Línuhappdrætti Skógarmanna, aðstoð við útdrátt.

11.   Hliðið málað.

 

 

Flokkur: Vatnaskógur