Innskráning

Gleði í Vatnaskógi og myndir byrjaðar að detta inn!

12.08.2010
Eftir: Starfsmaður Vatnaskógar

Myndakerfið er nú komið í lag og hafa fyrstu myndirnar verið settar inn. Netsambandið hefur engu að síður verið að stríða okkur því gengur myndainnsetning hægar en við hefðum kosið. 


Myndir má sjá hér: 

http://www.kfum.is/nc/myndir/?g2_itemId=120901

Athugið að myndirnar birtast á undirsíðum en neðst og efst á síðunni eru lítil númer sem smellt er á til að skoða næstu síðu, um 160 myndir eru nú komnar inn.

 

Nánari fréttir af gærdeginum koma í hádeginu en matseðill gærdagsins hjá Hreiðari Erni var eftirfarandi:

 

Morgunmatur                Heitt kakó ásamt smurðu hátíðarbrauði

 

Hádegismatur               Baconvafinn svikinn héri með rjómalagaðri sósu ásamt fersku salati, rauðkáli og sultu.

 

Kaffi                             Jógúrtterta – súkkulaðismákökur og kryddbrauð

 

Kvöldmatur                  Hrísgrjónagrautur a la Vatnaskógur

 

Kvöldkaffi                    Kex og ísköld mjólk

 

Góð þáttaka hefur verið í frjálsum íþróttum og hér fylgir árangur þeirra sem hafnað hafa í fyrstu þremur sætunum:

 

Kúluvarp

Jakob Eggertsson 7.25 m

Garðar Thor Steinsen 6.80 m

Gnýr Elíasson 6.76 m

 

60 m spretthlaup

Birgir Steinn Jónsson 9.67 s

Bjarki Rúnar Sverrisson 10.25 s

Bjarki Steinn Bjarkason 10.37 s

 

Langstökk

Birgir Steinn Jónsson 3.50 m

Viktor Nói Kristinsson 3.41 m

Gunnar Helgi Hálfdánarson 3.15 m

 

Spjótkast

Jakob Eggertsson 17.58 m

Einar Sigurður Einarsson 17.20 m

Jón Árni Árnason 17.25 m

 

1500 m hlaup

Ólafur Bjarni Hákonarson 5:50.10 mín.

Árni Fannar Friðriksson 5:53.73 mín.

Kristófer Máni Jónsson 5:55:76 mín.

 

Kringlukast

Gunnsteinn Magnússon 14,65

Jakob Eggertsson 13,60

Hrafn Marcher Helgason 13,40

 

400m hlaup

Kjartan Marcher Dagsson 1,24 mín

Ólafur Bjarni Hákonarson 1,28 mín

Þorgeir Markússon 1,30 mín

 

Flokkur: Vatnaskógur