Innskráning

Fjölskylduflokkur í Vatnaskógi dagskrá

03.02.10

Eftir: Starfsmaður Vatnaskógar

Mikil skráning er í Fjölskylduflokk Vatnaskógar hér er dagskrá en hún var ekki aðgengileg hér á www.kfum.is

DAGSKRÁ FJÖLSKYLDUFLOKKS Í VATNASKÓGI

Föstudagur 12. febrúar

19:00 Kvöldverður

20:00 Kvöldvaka í Gamla Skála

21:00 Frjáls tími

              - Bænastund í kapellu

              - Íþróttahúsið opið

              - Matsalurinn opinn

 

Laugardagur 13. febrúar

08:30 Vakið

09:00 Morgunverður

09:30 Morgunstund

              -Biblíulestur  

  -Fræðslustund foreldra           

              -Leikstund

              -Íþróttahúsið opið

              -Föndursmiðjan opin

12:00 Hádegismatur

13:00 Frjáls tími

              - Ratleikur

              - Stuttmyndagerð

              - Föndursmiðjan

              - Íþróttahúsið opið

15:00 Síðdegiskaffi

15:30 Frjáls tími

              - Kassabílar

              - Frjálsar íþróttir

              - Íþróttahátíð í íþróttahúsi

              - Undirbúningur fyrir hæfileikasýningu á kvöldvöku

              - Heitir pottar við íþróttahús

18:30 Hátíðarkvöldverður – veislukvöld

19:30 Kvöldvaka

21:00 Kvöldganga (stutt ganga sem endar í Kapellunni með bænastund) 

21:00 Matsalurinn opinn fram eftir kvöldi

 

Sunnudagur 14. febrúar

Frá kl. 09:30 – 10:30 Morgunverður

10:00 Íþróttahúsið opið

11:00 Útivera

12:00 Fjölskylduguðsþjónusta

          Umsjón Sr. Sigurður Grétar Sigurðsson

13:00 Hádegismatur

14:00 Brottför

------------------------------

Vert er að vera vel búinn til að njóta dvalarinnar sem best. 

Oft er mjög fallegt í Vatnaskógi á veturna en allra veðra er von. 

Rétt er að hafa búnað til útiveru s.s. stígvél eða gönguskó, regngalla, hlý útiföt, föt til skiptanna, húfu, stuttbuxur, sundföt (f. þá sem vilja fara í heita potta) og íþróttaskó til notkunar í íþróttahúsi og annað sem þið teljið nauðsynlegt. 

Einnig þarf að vera með sæng eða svefnpoka.

Stjórnendur flokksins verða þeir Ársæll Aðalbergsson framkvæmdastjóri Vatnaskógar og sr. Sigurður Grétar Sigurðsson sóknarprestur í Útskálaprestakalli.

Verð:

Verð: kr. 7.500.- frítt fyrir 6 ára og yngri (leikskólaaldur), hámark fyrir fjölskyldu er kr. 25.000.-

Skráning í fjölskylduflokkinn er hafin í Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK, Holtavegi 28, s.588 8899 eða á skraning(hjá)kfum.is

 

Flokkur: Vatnaskógur