Fjölskylduflokkur í Vatnaskógi 20. til 22. mars 2009
Frábær möguleiki fyrir fjölskylduna
Dagskrá og nokkrar upplýsingar
Gæðastundir með fjölskyldunni
Í fjölskylduflokk í Vatnaskógi ríkir notalegt andrúmsloft. Þar gefst fjölskyldunni tækifæri til að eiga góðan tíma saman í fallegu og afslöppuðu umhverfi. Engar áhyggjur af matseld né uppvaski -starfsmenn Vatnaskógar dekra við ykkur. Einu vandamál helgarinnar gætu orðið að velja hvort spila eigi borðtennis og þythokký við börnin áður en farið er í heita pottinn eða öfugt!
Dagskráin er í senn skemmtileg og uppbyggileg eins og sjá má að neðan. Nokkrir hápunktar eru þó umræðustund foreldra sem Bóas Valdórsson sálfræðingur sér leiðir meðan börnin leika sér í íþróttahúsinu með starfsfólki Vatnaskógar. Skógarmannakvöldvökurnar eru sígildar með kraftmiklum söng, mögnuðum skemmtiatriðum og andlegu veganesti. Stuttmyndagerðin, föndursmiðjan og hæfileikasýningin slær líka alltaf í gegn hjá börnunum.
Gert er ráð fyrir því að hver fjölskylda hafi sér herbergi og geti því notið tímans í Vatnaskógi á eigin forsendum í bland við skemmtilega dagskrá.
Útbúnaður:
Rétt er að hafa búnað til útiveru s.s. stígvél eða gönguskó, regngalla, hlý útiföt, föt til skiptanna, húfu, stuttbuxur, sundföt
(f. þá sem vilja fara í heita potta) og íþróttaskó til notkunar í íþróttahúsi og annað sem þið teljið nauðsynlegt. Einnig þarf að vera með sæng eða svefnpoka og kodda.
Stjórnendur helgarinnar:
Stjórnendur flokksins verða þeir Ársæll Aðalbergsson framkvæmdastjóri Vatnaskógar og sr. Sigurður Grétar Sigurðsson sóknarprestur á Hvammstanga. auk þeirra koma fleiri starfsmenn Vatnaskógar að helginni.
Mæting í Vatnaskóg er á milli kl. 18:30 og 19:00 á föstudeginum og hefst dagskráin formlega með kvöldverði kl. 19.00.
Verð: kr. 6.900.- frítt fyrir 6 ára og yngri (leikskólaaldur), hámark fyrir fjölskyldu er kr. 25.000.-
Greiða má með kreditkorti (s. 588 8899 alla virka daga kl. 9 - 17) eða leggja inn á bankareikning: 0117-26-12050 kt. 521182-0169
Skráning í fjölskylduflokkinn er hafin í Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK, Holtavegi 28, s.588 8899 (alla virka daga kl. 9 - 17)
Dagskrá
Föstudagur 20. mars
19:00 Kvöldverður
20:00 Kvöldvaka í Gamla Skála
21:00 Frjáls tími
- Bænastund í kapellu
- Íþróttahúsið opið
- Matsalurinn opinn
Laugardagur 21. mars
08:30 Vakið
09:00 Morgunverður
09:30 Morgunstund
-Biblíulestur
-Fræðslustund f. foreldra
Umsjón Bóas Valdórsson sálfræðingur
-Leikstund
-Íþróttahúsið opið
-Föndursmiðjan opin
12:00 Hádegismatur
13:00 Frjáls tími
- Skógarferð
- Stuttmyndagerð
- Föndursmiðjan
- Íþróttahúsið opið
15:00 Síðdegiskaffi
15:30 Frjáls tími
- Kassabílar
- Frjálsar íþróttir
- Íþróttahátíð í íþróttahúsi
- Undirbúningur fyrir hæfileikasýningu á kvöldvöku
- Heitir pottar við íþróttahús
18:30 Hátíðarkvöldverður – veislukvöld
19:30 Kvöldvaka - Umsjón sr. Guðni Már Harðarson
21:00 Kvöldganga (stutt ganga sem endar í Kapellunni með bænastund)
21:00 Matsalurinn opinn fram eftir kvöldi
Sunnudagur 22. mars
Frá kl. 09:30 – 10:30 Morgunverður
10:00 Íþróttahúsið opið
11:00 Útivera
12:00 Fjölskylduguðsþjónusta
Umsjón Sr. Sigurður Grétar Sigurðsson
13:00 Hádegismatur
14:00 Brottför
Vatnaskógur er æskulýðsmiðstöð KFUM og KFUK og er staðsett við Eyrarvatn í Hvalfjarðarsveit. Umhverfis staðinn er 220 ha skógur. Skammt frá Vatnaskógi er Hallgrímskirkja á Saurbæ á Hvalfjarðarströnd, Hótel Glymur og Félagsheimilið að Hlöðum. Á staðnum er meðal annars:
Gamli skáli sem er elsta hús staðarins (vígður 1943) með gistirými fyrir 48 dvalargesti í þremur svefnsölum og tveimur minni herbergjum. Í skálanum er kvöldvökusalur fyrir rúmlega 100 manns með arni, hljóðfærum og skjávarpa.
Birkiskáli er nýjasta hús staðarins, tekinn í notkun árið 2000. Þar er gistirými fyrir 64 dvalargesti í þrettán herbergjum.
Matskáli er með matsal sem tekur yfir 100 manns í sæti og eldhús sem búið er fullkominni eldunar- og uppþvottaaðstöðu.
Íþróttahús er með 350 m² íþróttasal, góðum íþróttadúk á gólfi og 6 m lofthæð. Þá er í húsinu notaleg setustofa og leiksvæði með ýmsum leiktækjum. Góð sturtuaðstaða er í íþróttahúsinu. Við Íþróttahúsið eru einnig heitir pottar.
Bátaskýli er við Eyrarvatn. Í því eru geymdir bátar sem vinsælt er að nýta til fiskveiða og annarrar skemmtunar á sumrin. Athugið að Eyrarvatn er iðulega frosið á þessum árstíma. Ísinn getur verið skemmtilegur til leika og gönguferða en getur verið varasamur.
Kapellan er lítið og fallegt bænahús í rjóðri rétt hjá Gamla skála. Fallegur upplýstur göngustígur liggur að kapellunni
Fjölskylduflokkur er tilvalin fyrir fjölskyldur stórar sem smáar að:
- njóta þess að vera saman
- fara í gönguferðir í fallegu umhverfi
- leika sér í íþróttum og leikjum
- vera með á Skógarmannakvöldvökum
- taka þátt í fræðslustundum
- skapa í listasmiðjunni