
Vatnaskógur er í Svínadal í Hvalfjarðarsveit. Þar er stórt íþróttahús, fótbolta- og frjálsíþróttavellir, smíðaverkstæði og bátar. Umhverfis Vatnaskóg eru margir forvitnilegir staðir sem gaman er að skoða. Þar fá strákarnir tækifæri til að prófa nýja hluti og fá útrás fyrir hugmyndaflug og ævintýraþrá. Öll kvöld enda með kvöldvöku þar sem brugðið er á leik og sungið. Auk þess er kafli úr Guðs orði hugleiddur kvölds og morgna.
Í hverjum flokki í Vatnaskógi dvelja 95 strákar.
Næsta föstudag, 3.febrúar, er fyrsti fundur Skógarvina nú á vormisseri 2012. Skógarvinir eru...
Í byrjun febrúar hefja Skógarvinir göngu sína á ný á vormisseri. Skógarvinir KFUM eru hópur...
Dagana 10.-12. febrúar verður fjölskylduflokkur í Vatnaskógi, þar sem skemmtileg og fjörug...