Innskráning

Skráning í sumarstarf KFUM og KFUK

 

 

Fyrsti skráningardagur í sumarbúðirnar 2011 er 26. mars.

Skráning í sumarbúðir KFUM og KFUK fer fram í s. 588 8899 kl. 9 - 17 alla virka daga.

Nýtt! Netskráning í sumarbúðirnar, smelltu hér

Upplýsingar um hópa og verð má finna í flokkaskrám sumarbúðanna og námskeiðaskrá leikjanámskeiðanna:

HÓLAVATN 

LEIKJANÁMSKEIÐ HÁTÚNI 36

KALDÁRSEL

LEIKJANÁMSKEIÐ HJALLAKIRKJU

VATNASKÓGUR

LEIKJANÁMSKEIÐ HOLTAVEGI

VINDÁSHLÍÐ

LEIKJANÁMSKEIÐ REYKJANESBÆ

ÖLVER

LEIKJANÁMSKEIÐ KALDÁRSELI

 

Við skráningu barns í sumarbúðir þurfa eftirfarandi upplýsingar að koma fram:

kennitala, nafn og heimilisfang barns
nöfn forráðamanna
símar og netföng forráðamanna
sumarbúðir og tímabil (flokkur)
greiðslufyrirkomulag (sjá nánari upplýsingar hér að neðan)

Við skráningu þarf að ganga frá greiðslu dvalargjalds að fullu. 
Af dvalargjaldi er kr. 6.000 óafturkræft sé hætt við þátttöku.

Athugið að rútugjald er innifalið í dvalargjaldi í öllum sumarbúðunum. ATH þó breytt fyrirkomulag með rútur í Kaldársel, sjá hér.

Veittur er 10% fjölskylduafsláttur sem dregst frá dvalargjaldi beggja/ allra systkina.

 

Dvalargjaldið er hægt að greiða með eftirfarandi hætti:

staðgreitt (í Þjónustumiðstöðinni Holtavegi 28, opið kl. 9 - 17 alla virka daga)
netgreiðsla (þegar skráð er á netinu fer greiðslan í gegnum örugga greiðslusíðu VALITOR)
skuldfært á kreditkort (þá er hægt að hringja inn kortanúmer í s.588 8899)
kortalán hjá VALITOR (sjá hér að neðan)

Kortalán:

Með einföldum hætti er hægt að skipta greiðslunni á kortalán í 3-6 mánuði. Kortalán eru án stimpilgjalds og vextir eru skv. verðskrá VALITOR. Kortalán gilda fyrir VISA og MasterCard. Aðeins er hægt að afgreiða Kortalán í Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK á Íslandi, Holtavegi 28.

Kortalán - gjaldskrá í mars* 
Vextir 10,75% 
Lántökukostnaður 3% 
Færslugjald 240 kr. 
*tekið af vef www.valitor.is

 

 

Hólavatn

Kaldársel

Vatnaskógur

Vindáshlíð

Ölver

Leikjanámskeið

565-26-30525

545-26-9111

117-26-12050

515-26-163800

552-26-422

117-26-4471

510178-1659

480883-0209

521182-0169

590379-0429

420369-6119

690169-0889

 

Nánari upplýsingar í síma 588 8899 kl. 9 - 17 alla virka daga.