Haust - og vetrarleiga
Sumarbúðirnar í Ölveri hafa langa sögu um útleigu fyrir hópa að vetrarlagi. Aðstaða er eins og best verður á kosið fyrir þá sem vilja njóta dvalar í friðsælu umhverfi. Staðsetning Ölvers er einungis um 1 km frá Þjóðvegi 1, sem liggur á milli Akraness og Borgarness. Sjaldan þarf því að hafa áhyggjur af ófærð. Ölver hefur hitaveitu sem sér til þess að húsakynni eru ávallt vel upphituð og hægt að nýta sturtur eins og með þarf. Rennandi kalt vatn er einnig allt árið um kring. Æskulýðsfélög, kórar, KFUM og KFUK deildir, kristnir söfnuðir, skátar og skiptinemasamtök eru meðal þeirra mörgu aðila sem hafa nýtt sér vetrardvöl í Ölveri á undanförnum árum. Ölver hentar sérlega vel fyrir 10 til 55 manna hópa. Boðið er upp á gistingu án matar en sé þess óskað er einnig hægt að sjá um mat. Upplýsingar um vetrarleigu veitir Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK í síma 588-8899 kl. 9-17 alla virka daga.
Húsakynni og gistiaðstaða
Í aðalbyggingu er góður samkomusalur, matsalur og fullkomið eldhús ásamt nokkrum snyrtingum, góðri sturtuaðstöðu að ógleymdum gistiherbergjum á báðum hæðum. Þvottavél og þurrkari er einnig á staðnum. Í samkomusalnum er píanó sem hægt er að nota.
Íþróttahús er gamalt en hefur sannað notagildi sitt í gegnum árin þar sem börn og fullorðnir hafa leikið sér innanhúss í skjóli fyrir veðri og vindum. Þess má geta að stofnaður hefur verið Sveinusjóður til fjáröflunar fyrir nýju íþróttahúsi. Sjá nánar um Sveinusjóð á www.kfum.is.
Sumarbústaður er á lóð Ölvers sem því miður er ekki hægt að nýta yfir vetrartímann.
Umhverfi og frístundir
Umhverfi Ölvers er kjarri vaxið og fyrir börnin er ævintýralegt að hlaupa þar um og leika sér. Í Ölveri eru góðar brekkur sem eru ákjósanlegar fyrir snjóþotur. Stór íþróttavöllur er einnig við sumarbúðirnar. Heitur pottur er á staðnum sem því miður er ekki hægt að nýta um vetur. Umhverfið býður upp á margs konar gönguleiðir. Fyrir gönguglaða eru gönguferðir upp á Blákoll í góðu veðri öllum ógleymanlegar auk þess sem styttri gönguferðir má fara inn með gili sem Hafnará hefur myndað. Gönguferð út að Stórasteini og út með fjalli að Leirá er einnig skemmtileg leið fyrir þá sem vilja njóta kyrrðar. Gönguferð niður að Hafnaránni er einnig góður kostur. Kunnugir gætu nefnt og skipulagt fleiri gönguleiðir t.d. fyrir gönguhópa.
Verðskrá
Ölver býður hagstæð verð fyrir hópa og því er gert ráð fyrir góðri umgengni þeirra sem dvelja á staðnum. Allir gestir eru beðnir um að ganga þannig frá við brottför að staðurinn sé tilbúinn undir komu næsta hóps. Séu vanefndir á því getur stjórn Ölvers rukkað leigutaka um allt að 25.000 kr vegna þrifkostnaðar.
Verðskráin gildir um pantanir sem gerðar eru frá og með 5.október 2011.
1 nótt: kr. 80.000
2 nætur: kr. 120.000
Staðinn er einungis hægt að bóka með því að greiða staðfestingargjald, kr. 30.000 við pöntun. Bæði er hægt að borga með millifærslu eða kreditkorti hjá Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK. Staðfestingargjald fæst ekki endurgreitt.
Annað
Öll neysla áfengra drykkja og annarra vímugjafa er stranglega bönnuð. Reykingar eru ekki leyfðar innandyra og eru reykingamenn vinsamlega beðnir um að henda ekki stubbum úti.