Innskráning

Upplýsingar fyrir þátttakendur

Textinn hér fyrir neðan í PDF skjali.

Mikilvægar upplýsingar fyrir foreldra og forráðamenn.
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - 
Við bjóðum barnið þitt velkomið í sumarbúðir KFUM og KFUK í Ölveri

Það er markmið okkar að barninu líði vel í sumarbúðum okkar.

Hér eru nokkrar hagnýtar upplýsingar.

1. Farangur
Eftirfarandi upptalning gefur hugmynd um nauðsynlegan farangur: Sæng eða svefnpoki, koddi, lak, regnföt, úlpa, stígvél, trefill, vettlingar, húfa, íþróttaskór, inniíþróttaskór, nærföt, sokkar, buxur, peysur, betri fatnaður f. veislukvöld, sundföt, handklæði, tannbursti, tannkrem og Nýja testamenti. Ekki er þvegið af börnunum í sumarbúðunum.

2. Fatamerking
Áríðandi er að merkja greinilega allan farangur og töskur með símanúmeri þátttakenda. Föt og aðrar eigur þátttakenda eru á ábyrgð þeirra sjálfra og verða ekki bættar ef eitthvað glatast eða skemmist. 
Gott er að gera nákvæman lista yfir farangur barnanna til að auðvelda þeim að pakka niður til heimferðar.

3. Óskilamunir
Hægt er að vitja óskilamuna í Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK við Holtaveg.
Eftir 1. október áskilja sumarbúðirnar sér rétt til að ráðstafa ósóttum óskilamunum.

4. Lyf / læknisvottorð
Ekki þarf að koma með læknisvottorð, nema eins og segir í reglugerð: „Þeim börnum sem eiga við einhvers konar veikindi að stríða skal fylgja læknisvottorð þar sem fram komi upplýsingar um veikindin og skýr fyrirmæli læknis um meðferð, lyfjagjöf o.s.frv."
Ef barnið tekur lyf, látið skriflegar leiðbeiningar fylgja með lyfinu og afhendið starfsmanni sumarbúðanna við brottför. Það sama á við ef eitthvað annað sérstakt gæti skipt máli varðandi heilsu barnsins og líðan.

5. Brottför - heimkoma 

Farið er frá húsi KFUM og KFUK á Holtavegi 28 kl. 11.00 og heimkoma á sama stað um kl. 20.30. ATH! Heimkoma úr Krílaflokki (6-9 ára, 25.-28. júlí) er kl.18:00.
Þeir sem kjósa að koma með og/eða sækja börn sín í sumarbúðirnar, í stað þess að nýta sér rútuferð, komi ekki með börnin fyrr en kl. 12 þann dag sem dvöl hefst og sæki þau ekki seinna en kl. 19:30 á brottfarardag.

6. Athugið
Vegna hættu á skemmdum eða slysum er þátttakendum óheimilt að hafa með sér hnífa eða önnur hættuleg tæki í sumarbúðirnar. Þátttakendur eru skaðabótaskyldir vegna skemmda sem þeir kunna að valda. Síma og önnur dýr tæki er einnig óheimilt að taka með.

7. Fyrirspurnir 
Ef foreldrar vilja spyrjast fyrir um börn sín á meðan á dvölinni stendur er hægt að hringja í síma 433 8860 og ræða við forstöðukonu. Símatími er kl. 18:00-19:00. Vinsamlega athugið að heimsóknir til barnanna eru ekki æskilegar.
Fréttir og myndir úr sumarbúðunum eru hér á heimasíðunni

8. Ölversbolir og geisladiskur með Ölverslögunum
Geisladiskar með Ölverslögunum og hinir sívinsælu Ölversbolir eru seldir í Ölveri og Þjónstumiðstöð KFUM og KFUK meðan birgðir endast, diskurinn kostar kr. 1500 og bolirnir sem til eru í þremur litum, gulir, rauðir og lime-grænir kosta 800kr. Ölversdiskur og bolur saman í pakka kostar 2000kr. Allur ágóði rennur beint í Sveinusjóð, söfnunarsjóð fyrir nýjum leikskála í Ölveri.