Leikjanámskeið KFUM og KFUK
Leikjanámskeið KFUM og KFUK verða haldin á tveimur stöðum sumarið 2011: á Holtavegi í Reykjavík, fyrir börn á aldrinum 6-7 ára og í Hátúni í Reykjanesbæ, fyrir börn á aldrinum 6-9 ára. Mikið líf og fjör verður á námskeiðunum, sem eru skemmtileg og góð dægradvöl fyrir börn.
Í sumar (2011) verða leikjanámskeið KFUM og KFUK því miður ekki starfrækt í Hjallakirkju í Kópavogi líkt og undanfarin ár.
Dagskrá leikjanámskeiðanna verður nánar auglýst í sumar.