Innskráning

Vorhátíð - skráning í sumarbúðirnar hefst á morgun!

19.03.2010
Eftir: Ástríður Jónsdóttir

Á morgun kl. 12:00 hefst skráning í sumarbúðir KFUM og KFUK.  Skráð verður á Vorhátíð KFUM og KFUK á Holtavegi 28 í Reykjavík og í Sunnuhlíð á Akureyri (hefst kl.14).  Einnig verður í fyrsta sinn hægt að skrá í sumarbúðirnar með netskráningu.

ATH að þeir sem skrá á netinu þurfa að ganga frá greiðslu að fullu með kreditkorti, ekki er hægt að nota debetkort í gegnum netið.  Þeir sem vilja nýta sér Vísalán frá VALITOR og dreifa greiðslunni á 3-6 mánuði þurfa að ganga frá skráningu á Holtavegi 28 í Reykjavík eða í Sunnuhlíð á Akureyri.

Flokkur: Æskulýðsstarf, Vatnaskógur, Hólavatn, Vindáshlíð, Kaldársel, Leikjanámskeið