Dæmigerður dagur á leikjanámskeiðum hefst klukkan 09:00. Þá gefst börnunum tími til dundurs og leikja. Þegar allir eru mættir á staðinn er lagt af stað á vit ævintýranna. Farið er í bæjarferðir þar sem heimsótt eru söfn og fjölskyldugarðar eða farið í Survivorleiki, fjársjóðsleit eða óvissuferð. Á föstudögum er alltaf haldin sumarhátíð. Þá eru grillaðar pylsur, leiðtogarnir sjá um andlitsmálun og farið er í leiki.
Klukkan 12:30 er tekið hlé á dagskránni fyrir hádegismat. Eftir hádegismat er svo dagskránni haldið áfram en venjulega er hópurinn kominn aftur á sinn stað milli 15:00 og 15:30 og þá er síðasti nestispakkinn opnaður. Leiðtogarnir sjá svo um leiki til 16:00 þegar allir fara glaðir heim til sín.
Kl. 8 - 9 og 16 - 17 geta börnin verið í gæslu utan dagskrár í umsjá leiðtoga og er greitt sérstaklega fyrir það.
Á hverjum degi er einhver leiðtoganna með stutta stund þar sem hann ræðir við börnin um ákveðið málefni. Það geta verið siðferðilegar spurningar, framkoma við aðra eða biblíusögur. Börnin kanna málefnið í gegnum sögur, leiki, verkefni eða þrautir.
Dagskrá hverrar viku er afhent foreldrum á mánudegi. Dagskráin er skipulögð þannig að barn getur verið á þremur námskeiðum þess að fara í gegnum nákvæmlega sömu dagskrána.