Innskráning

Leikjanámskeið KFUM og KFUK

Til foreldra/forráðamanna

Velkomin með börnin ykkar á leikjanámskeið KFUM og KFUK.

Til þess að námskeiðin verði sem ánægjulegust fyrir alla aðila eru nokkur atriði sem vert er að hafa í huga:

Leikjanámskeiðin standa frá klukkan 9 – 16.
Gæsla er frá kl. 8 – 9 og 16 – 17 og er gjald vegna gæslu kr. 1.000 fyrir vikuna.

Áríðandi er að merkja öll föt og töskur með nafni og símanúmeri.

Börnin þurfa að koma sjálf með nesti (morgunhressingu, hádegismat og nesti eftir hádegi), nema á föstudegi, þá verða grillaðar pylsur og er hádegisnesti því óþarft þann dag að drykk undanskildum.

Munið að senda börnin vel útbúin á hverjum degi með pollagalla, góða skó, hlýja peysu auk léttari fata fyrir góða veðrið.

Dagskrá vikunnar verður afhent fyrsta dag námskeiðsins.
Ef barnið tekur lyf eða hefur aðrar sérþarfir þarf að koma með skriflegar leiðbeiningar á fyrsta degi námskeiðsins.

Góða skemmtun í sumar.