Innskráning

Haust og vetrarleiga

Á veturna er Kaldársel leigt út til einstaklinga, félaga og hópa til skemmri eða lengri dvalar. Kaldársel er upplagt fyrir skólaferðalög, dagsheimsóknir, fundi, ráðstefnur, fermingar, afmæli, og kór- og tónlistaræfingar. 

Kaldársel er staðsett skammt fyrir ofan Hafnarfjörð í friðsælli og ævintýranlegri náttúruparadís.  Fjölbreytt náttúra þar býður upp á ýmsa útivistarmöguleika svo sem gönguferðir, fjallgöngur, hellaskoðanir og margt fleira.

Á staðnum er góð svefnaðstaða fyrir allt að 50 manns. Gistiaðstan skiptist í tvo svefnsali fyrir 10 manns hvor og einn fyrir 20 manns auk fjögurra 2-3 manna herbergja. Fullbúið eldhús, matsalur, íþróttasalur og samverusalur eru á staðnum. Utan við húsið er leiksvæði með sparkvelli.

Gjaldskrá fyrir árið 2011 :
Lágmarksgjald fyrir dagsheimsókn er 35.000 kr. (m.v. 50 manns)
Lágmarksgjald fyrir eina nótt er 65.000 kr. (m.v. 30 manns)
Lágmarksgjald fyrir tvær nætur er 100.000 kr. (m.v. 30 manns)
Einstaklingsgjald umfram 30 manns er 1.600 kr. pr. mann á nótt.

Við bendum á ótvíræðan kost þess að velja Kaldársel sem áfangastað þar sem nálægð hans við höfuðborgarsvæðið lækkar rútukostnað og styttir ferðatímann. 

Nánari upplýsingar og skráning eru hjá Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK í síma 588 8899.