Innskráning

Upplýsingar fyrir þátttakendur

Textinn hér fyrir neðan á PDF-formi

Mikilvægar upplýsingar fyrir foreldra og forráðamenn
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Við bjóðum barnið þitt velkomið í sumarbúðir KFUM og KFUK í Kaldársel
Það er markmið okkar að barninu líði vel í sumarbúðum okkar.

Hér eru nokkrar hagnýtar upplýsingar:

1. Farangur
Eftirfarandi upptalning gefur hugmynd um nauðsynlegan farangur:

Sæng eða svefnpoki, koddi, lak, regnföt, úlpa, stígvél, íþróttaskór, lítill bakpoki og vatnsbrúsi f. lengri gönguferðir, inniíþróttaskór, nærföt, nægir sokkar, peysur, trefill, húfa, vettlingar, buxur, betri fatnaður, sundföt, handklæði, sápa, tannbursti, tannkrem og Nýja testamenti. Ekki er þvegið af börnunum í sumarbúðunum.Sælgæti er ekki leyfilegt í Kaldárseli.
Ath! Í Kaldárseli þurfa börnin á vasaljósi að halda vegna hellaferða.

2. Fatamerking
Áríðandi er að merkja greinilega allan farangur og töskur með símanúmeri þátttakenda. Föt og aðrar eigur þátttakenda eru á ábyrgð þeirra sjálfra og verða ekki bættar ef eitthvað glatast eða skemmist.
Gott er að gera nákvæman lista yfir farangur barnanna til að auðvelda þeim að pakka niður til heimferðar.

3. Óskilamunir
Hægt er að vitja óskilamuna í Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK á Holtavegi 28.
Eftir 1. október áskilja sumarbúðirnar sér rétt til að ráðstafa ósóttum óskilamunum.

4. Lyf / læknisvottorð
Ekki þarf að koma með læknisvottorð, nema eins og segir í reglugerð: „Þeim börnum sem eiga við einhvers konar veikindi að stríða skal fylgja læknisvottorð þar sem fram komi upplýsingar um veikindin og skýr fyrirmæli læknis um meðferð, lyfjagjöf o.s.frv."
Ef barnið tekur lyf, látið skriflegar leiðbeiningar fylgja með lyfinu og afhendið starfsmanni sumarbúðanna við brottför. Það sama á við ef eitthvað annað sérstakt gæti skipt máli varðandi heilsu barnsins og líðan.

5. Brottför - heimkoma
Brottför er frá Lækjarskóla í Hafnarfirði kl. 10:00 í almenna flokka, en foreldrar sækja börnin sín í Kaldársel kl. 17:00 á föstudegi.  Á leikjanámskeiðum fer rúta kl. 08:00 frá Lækjarskóla á mánudegi til fimmtudags og sækja foreldrar börnin sín í Kaldársel daglega kl. 17:00 nema fimmtudag þegar börnin gista í Kaldárseli. 

6. Athugið
Vegna hættu á skemmdum eða slysum er þátttakendum óheimilt að hafa með sér hnífa eða önnur hættuleg tæki í sumarbúðirnar. Þátttakendur eru skaðabótaskyldir vegna skemmda sem þeir kunna að valda. Síma og önnur dýr tæki er einnig óheimilt að taka með.

7. Fyrirspurnir
Ef foreldrar vilja spyrjast fyrir um börn sín á meðan á dvölinni stendur er hægt að hringja í síma 555 6211 og ræða við starfsfólk. Símatími er kl. 11:15-12:00 alla daga. Vinsamlega athugið að heimsóknir til barnanna eru ekki æskilegar.
Fréttir og myndir úr sumarbúðunum eru hér á heimasíðunni.

8. Kaffisala og opið hús í Kaldárseli
Kaffisala og opið hús verður í Kaldárseli sunnudaginn 11. september 2011 frá kl. 13:00. Það er tilvalið að heimsækja Selið, njóta fallegrar náttúru og útiveru, upplifa staðinn með börnunum og styðja starfið í Kaldárseli með því að kaupa góðar veitinar á vægu verði. Allir eru velkomnir, einkum dvalargestir sumarsins og forráðamenn þeirra.