Hvað gerum við í Kaldárseli?
Hjá Kaldárseli rennur Kaldá sem gefur staðnum skemmtilegan svip og tækifæri til að vaða á hlýjum dögum eða sigla litlum duggum. Á grónu leiksvæði við ána eru leiktæki og þar er hægt að fara í ýmsar íþróttir og leiki, auk þess sem hraunið í kring býður upp á ýmsa möguleika til leikja. Í næsta nágrenni við Kaldársel eru spennandi staðir, svo sem vinin Valaból, eldstöðin Búrfell, móbergsfjallið Helgafell, ýmsir hellar, skóglendi og önnur útivistarsvæði sem gaman er að skoða.
Í Kaldárseli eru stundaðar ýmsar íþróttir eins og fótbolti, fjálsar íþróttir, brennibolti, borðtennis, körfubolti, krikket, skotbolti og að ganga á stultum. Þá er góður íþróttasalur til að leika og keppa í þegar illa viðrar úti.
Í Kaldárseli hefur hver dagur fast skipulag sem býður upp á margvísleg viðfangsefni, allt eftir áhuga hvers og eins. Að morgni dags er samverustund með fræðslu og söngvum. Eftir hana er frjáls tími, t.d. við ána, úti í hrauni, á smíðavelli, á íþróttavelli eða í íþróttasal þegar illa viðrar. Eftir hádegi er lögð áhersla á útiveru og gönguferðir. Eftir kvöldmat eru kvöldvökur þar sem starfsfólk og börn bregða á leik og syngja saman. Kvöldvökunni lýkur svo með stuttri helgistund.
Aðstaða í Kaldárseli
Skáli
Skálinn í Kaldárseli er tvískiptur. Í vestari hluta er eldhús, matsalur, salernisaðstaða, tveir svefnsalir, auk þriggja minni herbergja. Í austari hluta er íþróttasalur, tómstundaherbergi, kvöldvökusalur, svefnsalur, tvö svefnherbergi, salernisaðstaða og geymslur. Elsti hluti skálans er frá 1925 en tvisvar hefur verið byggt við hann.
Önnur aðstaða
Fótboltavöllur, útileiktæki, kassabílar.