Innskráning

Leikjanámskeið í Kaldárseli

Í sumar verður boðið upp á leikjanámskeið í Kaldárseli fyrir 6-9 ára börn og verður það haldið dagana 4. - 8. júlí.

Dagskráin verður með hefðbundu sumarbúðasniði og fá börnin að kynnast því helsta sem Kaldársel og nágrenni hefur upp á að bjóða bæði úti í náttúrunni, inni í skálanum og íþróttahúsinu. Leikjanámskeiðið er frábrugðið hefðbundum dvalarflokkum að því leiti til, að börnin dvelja eingöngu í Kaldárseli að degi til frá mánudegi til fimmtudags en ljúka svo námskeiðinu með því að gista í Kaldárseli í eina nótt, frá fimmtudagskvöldi til föstudags og fara síðan heim síðdegis þann dag. Þau börn sem ekki treysta sér til að dvelja nóttina geta farið heim síðdegis á fimmtudeginum og komið í Kaldársel að morgni föstudags með forráðamönnum sínumm og taka þátt í viðburðum dagsins með hinum sem gista.

Innifalið í verði er gæsla og umsjón með börnunum í viðburðum dagsins, rútuferðir, morgunkaffi, hádegismatur og síðdegiskaffi. Að auki er kvöldverður og kvöldkaffi ásamt gistingu frá fimmtudegi til föstudags og morgunverður að auki. Gæslan verður höndum sumarbúðastarfsmanna okkar, en þeir eru 18 ára og eldri og hafa lokið sérstökum skyldunámskeiðum sem KFUM og KFUK á Íslandi skipuleggja sérstaklega fyrir starfsmenn sumarbúða félagsins.

Rúta fer frá Lækjarskóla kl. 08:00 að morgni (nema föstudag, þar sem börnin gista í Kaldárseli aðfaranótt föstudags).  Athugið að sækja þarf börnin á leikjanámskeiðið í lok hvers dags (kl.17) í Kaldársel, að undanskildum fimmtudegi, þar sem börnin gista í Kaldársel aðfararnótt föstudags”.

Leikjanámskeiðin nutu gríðarlegra vinsælda í fyrra og eru góð leið fyrir þá sem ekki treysta sér til að dvelja vikulangt í burtu frá mömmu og pabba en langar samt að upplifa alvöru sumarbúðastemningu.