
Um Kaldársel | Flokkaskrá 2011 | Upplýsingar |
Leikjanámskeið | Stelpur í stuði | |
Fréttir | Skálasjóður | Myndir |
Sumarbúðirnar í Kaldárseli eru í hrauninu, skammt ofan við Hafnarfjörð. Þar er fjöldi hella og ævintýralegra staða sem vert er að skoða. Í Kaldárseli er skemmtilegt útivistar- og leiksvæði, meðal annars í hrauninu við skálann. Fjölbreytt dagskrá er í boði allan daginn, skipulögð fyrir börn eins og hæfir hverju aldursbili. Að morgni dags er samverustund með fræðslu og söngvum. Frjáls tími og vönduð dagskrá að deginum til. Á kvöldvöku bregða börn og starfsfólk á leik og syngja saman. Þá er hugleiðing út frá orði Guðs í Nýja testamentinu um kristna trú og persónu Jesú Krists. Í Kaldárseli er leitast við að efla og ýta undir góð mannleg samskipti með uppbyggilegri leiðsögn sem miðar að því að gera börnin meðvituð um góð gildi í lífinu, virkjuð athafnaþrá, leikgleði og sköpunarþörf hvers og eins, með náungakærleikann að leiðarljósi. Í hverjum flokki geta dvalist um 40 börn.
Kæri lesandi, Opnunar - og afgreiðslutími í Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK að Holtavegi 28,...
Kæri lesandi, Opnunar - og afgreiðslutími í Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK að Holtavegi 28,...
Fyrir rúmu ári kom út DVD - diskurinn ,,Daginn í dag – Sunnudagaskólinn á DVD” frá...