Hvað gerum við á Hólavatni?
Fagurt umhverfið gefur kost á hollri útivist og að sjálfsögðu hefur Hólavatnið sjálft upp á ýmsa töfrandi kosti að bjóða, svo sem hressandi bátsferðir, stangveiði og baðstrandarlíf á heitum dögum. Þá eru ýmsar íþróttir stundaðar af kappi á staðnum, farið í hópleiki og gjarnan litið við á bóndabæ í nágrenninu til að kynnast störfum í sveitinni. Á Hólavatni fer fram fræðsla um kristna trú á hverjum degi. Oft er sungið við raust og hver dagur endar með kvöldvöku þar sem saman fer gaman og alvara.
Aðstaða á Hólavatni
Skálinn (frá 1965)
Skálinn er á tveimur hæðum. Á efri hæð er eldhús, borðsalur og starfsmannaherbergi. Á neðri hæð eru tveir svefnsalir með gistirými fyrir 24 börn, salernisaðstaða, búr og geymsla.
Hólabær
er starfsmannabústaður með tveimur herbergjum.
Önnur aðstaða
Fótboltavöllur, körfuboltavöllur, leiktæki, bátar og bátaskýli