Á vegum KFUM og KFUK eru starfræktar 5 sumarbúðir og tvö leikjanámskeið á hverju sumri. Auk þess eru sumarbúðirnar notaðar á veturna fyrir ýmsa starfsemi.
Hólavatn er sumarbúðir KFUM og KFUK við Hólavatn sem er við innanverðan Eyjafjörð. Þar hefur verið sumarbúðastarf frá árinu 1965. Bátar, gönguferðir, heimsókn á bóndabæ, íþróttir, útivera, kvöldvökur og samverustundir eru fátt eitt af því sem í boði er fyrir þátttakendur á Hólavatni. Á Hólavatni eru rúm fyrir 24 dvalargesti.
Kaldársel er sumarbúðir KFUM og KFUK skammt fyrir ofan Hafnarfjörð í nágrenni Helgafells. Kaldársel stendur við Kaldá í Hafnarfjarðarhrauni og því eru hellaferðir og ævintýraferðir um hraunið skemmtilegur hluti starfsins. Kvöldvökur, samverustundir, íþróttir, smíðavöllur og búgerð í hrauninu eru einnig fastir liðir. Þar hefur verið sumarbúðastarf frá árinu 1925. Í Kaldárseli eru rúm fyrir 40 dvalargesti.
Vatnaskógur er æskulýðsmiðstöð KFUM og KFUK við Eyrarvatn í Svínadal í Hvalfjarðarsveit. Skammt frá Vatnaskógi er Hallgrímskirkja á Saurbæ, Hótel Glymur og félagsheimilið að Hlöðum. Í Vatnaskógi hefur verið sumarbúðastarf frá árinu 1923. Þar er mikið um íþróttir, bæði boltaíþróttir og frjálsar íþróttir, könnunarleiðangrar um óbeislaða náttúruna eru mikilvægur hluti dvalarinnar ásamt bátsferðum, smíðaverkstæði, leikjum og samverustundum. Í Vatnaskógi fer nú fram starfsemi allan ársins hring, sumarbúðir drengja á sumrin og fermingarnámskeið á veturna auk ýmissa móta og námskeiða. Þar eru rúm fyrir 95 dvalargesti.
Vindáshlíð er sumarbúðir KFUM og KFUK við Kjósarskarðsveg undir Sandfelli um 45 km frá Reykjavík. Þar er brennókeppni og aðrar íþróttir, útivera, listsköpun, samverustundir og kvöldvökur mikilvægur hluti dvalarinnar og umhverfi sumarbúðanna býður upp á óteljandi ævintýri. Þar hefur verið sumarbúðastarf frá árinu 1947.Í Vindáshlíð eru rúm fyrir 80 dvalargesti.
Ölver er sumarbúðir KFUM og KFUK undir Hafnarfjalli um 25 km frá Akranesi og um 10 km frá Borgarnesi. Þar er brennókeppni og aðrar íþróttir, útivera, listsköpun, samverustundir og kvöldvökur mikilvægur hluti dvalarinnar og umhverfi sumarbúðanna býður upp á óteljandi ævintýri. Þar hefur verið sumarbúðastarf frá 1952. Í Ölveri eru rúm fyrir 42 dvalargesti.
KFUM og KFUK standa fyrir leikjanámskeiðum á sumrin fyrir börn á aldrinum 6-9 ára. Námskeiðin eru haldin í Hjallakirkju í Kópavogi, Guðríðarkirkju í Grafarholti í Reykjavík, Hátúni 36 í Reykjanesbæ og á Holtavegi 28 í Reykjavík.