KFUM og KFUK á Akureyri

KFUM og KFUK á Akureyri er með reglulega fundi fyrir krakka og unglinga í húsnæði félagsins í verslunarmiðastöðinni Sunnuhlíð. Húsið er opið í hálftíma fyrir fundi og er þá hægt að spila á spil, leika í fótboltaspili og snóker ásamt því að skoða teiknimyndablöð og spila Playstation leiki (Eye Toy, SingStar o.fl.). Ekki má gleyma því að nú er komið þythokkýborð sem er mjög gaman að prófa!

Sviðsstjóri æskulýðssviðs KFUM og KFUK á Íslandi, Jóhann H. Þorsteinsson, hefur skrifstofu í Sunnuhlíð 12 á Akureyri og hefur umsjón með starfinu.