Skiladagar fyrir Jól í skókassa úti á landi detta nú inn einn af öðrum.

Í dag, föstudaginn 7. nóvember verður tekið á móti skókössum í safnaðarheimili Grundafjarðarkirkju frá kl. 15-18 og einnig er síðasta tækifærið til að skila kössum á Ísafirði í Ísafjarðarkirkju en hún er að jafnaði opin til kl. 16.

Lokaskiladagar í Stykkishómi, á Höfn og í Reykjanesbæ (Keflavík) hafa þegar farið fram.