www.kfum.is - RSS feed
Árshátíð Vindáshlíðar 4. febrúar 2012!
Bæna - og vitnisburðasamkoma á Holtavegi sunnudaginn 5. febrúar
Næsta sunnudag, 5. febrúar, verður að venju sunnudagssamkoma í húsi KFUM og KFUK á Holtavegi 28, Reykjavík, kl.20.
Samkoman verður að þessu sinni bæna-og vitnisburðasamkoma, í umsjá Örnu Ingólfsdóttur.
Á samkomunni mun Sólveig Reynisdóttir gefa vitnisburð sinn, og  samkomugestum er einnig boðið að gefa vitnisburð, og settar verða upp eins konar bænastöðvar í samkomusalnum.
Guðrún Jóna Þráinsdóttir (Rúna) mun sjá um tónlistarundirleik, og Björgvin Þórðarson verður samkomuþjónn.
Allir eru hjartanlega velkomnir á samkomuna á sunnudagskvöldið og hvattir til að eiga góða stund í góðum félagsskap í upphafi nýrrar viku.
Fundur hjá AD KFUM 2. febrúar: Að vera prestur í Noregi – Viðtal við Þráin Haraldsson
Fimmtudaginn 2.febrúar kl.20 verður fundur hjá AD KFUM, í húsi KFUM og KFUK á Holtavegi 28.
Efni fundarins er áhugavert, en það ber yfirskriftina „Að vera prestur í Noregi – Reynslan og upplifunin“. Viðtal verður tekið við séra Þráin Haraldsson, sem hefur starfað undanfarið sem prestur í Álasundi. Nýjasta tækni mun gera það kleift að viðtalið verður tekið gegnum internetið, og verður skjávarpað beint frá Noregi yfir á Holtaveg.
Þráinn starfaði lengi í sumarbúðum KFUM og KFUK í Vatnaskógi, og hefur einnig starfað sem æskulýðsfulltrúi í Hjallakirkju.
Stjórnun fundarins er í höndum Harðar Geirlaugssonar.
Að fundi loknum verður að venju boðið upp á kaffi og kaffiveitingar. Allir karlmenn á öllum aldri eru hjartanlega velkomnir.
Skógarvinir hefjast 3. febrúar: Skráning í fullum gangi
Næsta föstudag, 3.febrúar, er fyrsti fundur Skógarvina nú á vormisseri 2012.
Skógarvinir eru hópur drengja á aldrinum 12-14 ára sem taka þátt í æskulýðsstarfi KFUM og KFUK með sérstakri áherslu á Vatnaskóg. Dagskráin í vor er skemmtileg og sést hér fyrir neðan. Skógarvinir hittast alls fimm sinnum í vor.
Dagskráin hefst kl. 17:00 á föstudögum, en mæting er í hús KFUM og KFUK á Holtavegi 28, Reykjavík.
Þátttökugjald er 9.500 kr., en innifalið í þeirri upphæð eru ferðir, matur og gisting. Skráning er hafin og er í fullum gangi í síma 588-8899 og einnig á <link http://skraning.kfum.is/ _blank - "Tengill í aðra síðu - Opnast í nýjum glugga">skraning.kfum.is</link>. Aðeins 25 drengir komast að í Skógarvini.
Dagskrá Skógarvina vorið 2012:
3. febrúar
Skógarmannafundur á Holtavegi: Uppbygging í Vatnaskógi kynnt.
Farið í leiki - Síðdegishressing  - Dagskrá lýkur kl. 19:00.
17. febrúar
Rúv/ Sportið: Heimsókn á Rúv  til  Þorkels Gunnars íþróttafréttamanns.
Síðdegishressing - Mæting á Holtaveg og heimkoma á sama stað um  kl. 19:00.
2. mars
Hellaskoðun: Raufarhólshellir skoðaður
Vinsamlega komið með vasaljós og hjálm
Kvöldmatur   - Heimkoma á Holtaveginn um kl. 20:30.
16.- 17. mars
Ferð í Vatnaskóg:
Spennandi ævintýraferð þar sem drengirnir takast
á við verkefni og ævintýri í Vatnaskógi á óvenjulegum tíma.
Heimkoma á laugardeginum kl.14:00.
30. mars
Laser tag
Lindakirkja heimsótt - Kvöldmatur
Dagskrá lýkur kl. 21:00.
Umsjónarmenn Skógarvina vorið 2012 eru:
Ársæll Aðalbergsson 50 ára
Benedikt Snær Magnússon 22 ára
Styrmir Magnússon  36 ára
Þór Bínó Friðriksson  25 ára.
Skógarmenn - Áfram að markinu!
Heimsþing KFUK í Sviss 2011 - Frásögn á AD KFUK - fundi 31. janúar
Á morgun, þriðjudaginn 31. janúar, verður fundur hjá Aðaldeild (AD) KFUK í húsi KFUM og KFUK að Holtavegi 28, Reykjavík, kl.20, líkt og aðra þriðjudaga yfir vetrartímann.
Á fundinum verður Heimsþing KFUK í Sviss sumarið 2011 til umfjöllunar, en þær Gyða Karlsdóttir, Hildur Björg Gunnarsdóttir, Hildur Þóra Hallbjörnsdóttir og Kristín Sverrisdóttir munu segja frá ferð sinni, þátttöku á þinginu og upplifun af því í máli og myndum.
Þórdís Klara Ágústsdóttir stjórnar fundinum.
Að fundi loknum verður að venju boðið upp á kaffi og kaffiveitingar gegn vægu verði. Allar konur á öllum aldri eru hjartanlega velkomnar á fundinn.
„Ég, Drottinn, Guð þinn, held í hægri hönd þína og segi við þig: „Óttast þú eigi, ég hjálpa þér.“ ( Jes. 41:13)
Árshátíð Vindáshlíðar 4. febrúar 2012!
Að efla völd ungs fólks: Leiðtoganámskeið í Vatnaskógi um helgina sem leið
Um nýliðna helgi fór fram leiðtoganámskeið í Vatnaskógi fyrir leiðtoga í æskulýðsstarfi KFUM og KFUK. Þátttaka og stemmning var góð, og mikill snjór á svæðinu.
Í Vatnaskógi um helgina var rætt um hvað felst í að vera leiðtogi alla ævina, farið í fjöruga leiki, fjallað um áfallaáætlanir, borðaðar kökur, haldinn fyrirlestur um starfsemi KFUM og KFUK, spiluð Mafía, rætt um æskulýðsstarfið framundan, hlegið, hafðar bænastundir, rætt um aðkomu KFUM og KFUK á Íslandi að heimsáskorun KFUM og síðast en ekki síst talað um valdeflingu ungs fólks.
Á svæðinu voru 44 leiðtogar í starfi KFUM og KFUK á Íslandi í Vatnaskógi ásamt Romulo Dantas frá Heimssambandi KFUM. Romulo ber ábyrgð á og stýrir verkefnum Heimssambandsins á sviði valdeflingar (e. empowerment) ungs fólks. Það er óhætt að segja að ferskleikinn, gleðin og vináttan hafi svifið yfir vötnum í Skóginum þegar sjálfboðaliðar í æskulýðsstarfinu á öllum aldri ræddu um starfið sitt, kynntu sér nýjungar og skipulögðu framtíðina.
Skipulag og undirbúningur námskeiðsins var í höndum starsfmanna á æskulýðssviði KFUM og KFUK, þeirra Jóns Ómars Gunnarssonar, Halldórs Elíasar Guðmundssonar, Hjördísar Rósar Jónsdóttur og Jóhanns Þorsteinssonar.
Sunnudagssamkoma sunnudaginn 29. janúar á Holtavegi: Ávöxtur andans
Yfirskrift samkomunnar er að þessu sinni:  „Ávöxtur andans“ (Gal. 5:22-23) – Gegn slíku er lögmálið ekki.“ Ræðumaður kvöldins er Guðlaugur Gunnarsson.
Stjórnun og tónlistarflutningur er í höndum Bjarna Gunnarssonar og félaga, sem munu leika og syngja ljúfa tóna.
Að samkomu lokinni verður hægt að kaupa gos og sælgæti til styrktar KSS.
Allir eru hjartanlega velkomnir!
AD KFUM - fundur í kvöld: Staða kristni í Reykjavík við upphaf nýs árs
Í kvöld, fimmtudaginn 26. janúar kl.20 verður fundur hjá AD (aðaldeild) KFUM í húsi KFUM og KFUK að Holtavegi 28 í Reykjavík.
Efni fundarins er að þessu sinni: „Staða kristni í Reykjavík við upphaf nýs árs“, í umsjá séra Gísla Jónassonar, prófasts.  Séra Gísli mun einnig flytja hugleiðingu.
Tómas Torfason stjórnar fundinum.
Í lok fundarins mun Romulo Dantas, framkvæmdastjóri „Youth Empowerment“ hjá Heimssambandi KFUM, sem kom til Íslands í gærkvöldi, flytja stutt ávarp.
Kaffi og kaffiveitingar verða á boðstólnum í lok fundar að venju. Allir karlmenn eru hjartanlega velkomnir.
Tilkynning: Bíllinn kominn í leitirnar
Bíll sem stolið var fyrir utan hús KFUM og KFUK að Holtavegi í gær, þriðjudagskvöldið 24. janúar, er nú kominn í leitirnar.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vinnur nú að rannsókn málsins.
Öllum þeim sem sýndu stuðning vegna málsins, eru færðar innilegar þakkir.
Kær kveðja,
Starfsfólk Þjónustumiðstöðvar KFUM og KFUK