Yngri deildir eru fyrir 9-12 ára krakka. Krakkarnir hittast einu sinni í viku í sinni deild og gera ýmislegt skemmtilegt saman t.d. fara í leiki, óvissuferðir, Pálínuboð, búa til nælur, mála á plexigler og ýmislegt fleira. Á hverjum fundi er helgistund. Yfir veturinn eru ýmsir sameiginlegir viðburðir s.s. fótbolta- og brennómót og stutt ferðalag í sumarbúðirnar.
Höfuðborgarsvæðið
Suðurnes
Vesturland
Norðurland
Suðurland
Unglingadeildir eru fyrir unglinga 13-16 ára. Þátttakendur hittast einu sinni í viku og er dagskráin í bæði skemmtileg, fróðleg og uppbyggjandi. Það er aldrei að vita upp á hverju leiðtogarnir taka næst. Í vetur verður tvisvar farið í stutt ferðalag annars vegar á Landsmót kirkjunnar og hins vegar á landsmót í Vatnaskógi.
Höfuðborgarsvæðið
Suðurnes
Vesturland
Norðurland
Suðurland
Ungmennastarf innan KFUM og KFUK er aðallega fólgið í þemadeildum og samstarfi við Kristilegu skólahreyfinguna en innan hennar starfa Kristileg skólasamtök fyrir 16 - 20 ára og Kristilegt stúdentafélag fyrir 20 - 30 ára.
Á Akureyri starfar KNS eða Kristilegt næstum því stúdentafélag fyrir framhaldsskólanema í samstarfi við Glerárkirkju, Akureyrarkirkju og Hjálpræðisherinn.