Innskráning

Sumarbúðanámskeið

Á hverju ári á vorönn eru haldin sérstök námskeið fyrir starfsfólk sumarbúða félagsins.  Námskeiðin eru fjölbreytt enda þarf starfsmaður í sumarbúðum að þekkja vel til barna og geta brugðist við ýmsum aðstæðum og uppákomum.

KFUM og KFUK leggur mikið upp úr því að starfsmenn sumarbúðanna séu vel þjálfaðir.  Meðal námskeiða sem haldin eru á hverju ári eru: skyndihjálp og brunavarnir, Verndum þau, umönnun og þroski barna.  Einnig eru kennd: ljósmyndun, notkun leikja, að ræða við börn ofl.

Námskeiðalisti fyrir starfsmenn sumarbúðanna verður birtur á vorönn 2010. Öllum starfsmönnum sumarbúða KFUM og KFUK er skylt að sækja námskeiðin.