Innskráning

Samstarfsaðilar

KFUM og KFUK á í góðu samstarfi við ýmsa aðila um leiðtogaþjálfun.  Þessir eru helstir:

Fræðslusvið Biskupsstofu

Fræðslusvið biskupsstofu ber ábyrgð á stefnumörkun í fræðslumálum þjóðkirkjunnar og er leiðtogafræðsla mikilvægur hluti þeirrar stefnu.  Það gefur auga leið að kirkjan og KFUM og kFUK hafa að mörgu leyti sömu þarfir þegar kemur að leiðtogaþálfun og hafa átt gott samstarf til fjölda ára.  Á hverju ári eru tvö leiðtoganámskeið haldin í samstarfi við kirkjuna.  Almennt leiðtoganámskeið í september og svo kallað "Sólheimanámskeið" í febrúar, en það er heilsdagsnámskeið þar sem farið er djúpt í ýmsa þætti leiðtogastarfsins. 

ÆSKR

Æskulýðssamband kirkjunnar í Reykjavíkurprófastsdæmum hefur að gera með þjálfun leiðtoga í kirkjulegu starfi auk þess sem það skipuleggur sameiginleg verkefni fyrir ungt fólk á vegum safnaða þjóðkirkjunnar á höfuðborgarsvæðinu.  KFUM og KFUK hefur verið í samstarfi við ÆSKR um leiðtogaþjálfun á sama hátt og við fræðslusvið biskupsstofu og Kjalarnesprófastsdæmi.  Almennt leiðtoganámskeið í september og Sólheimanámskeið að vori.

Kjalanesprófastsdæmi

Kjalarnesprófastsdæmi er eitt af 15 prófastsdæmum Íslands en í því eru 17 sóknir.  Kjalarnesprófastsdæmi leggur mikið upp úr æskulýðsstarfi og þjálfun leiðtoga og hefur verið samstarfsaðili KFUM og KFUK að sameiginlegum leiðtoganámskeiðum líkt og Fræðslusvið biskupsstofu og ÆSKR.  Sameiginleg verkefni eru almennt leiðtoganámskeið í september og Sólheimanámskeið að vori.

Æskulýðsráð ríkisins

Æskulýðsráð ríkisins starfar á vegum menntamálaráðuneytisins og fjallar það um mál tengd æskulýðsstarfi um allt land.  Fyrir nokkrum árum kom æskulýðsráð að útgáfu bókarinnar Verndum þau sem fjallar um ofbeldi gagnvart börnum og leiðir til þess að bregðast við þeim.  Í kjölfarið hefur æskulýðsráð hvatt og styrkt æskulýðssamtök til að halda námskeiðin Verndum þau og heldur KFUM og KFUK nokkur slík námskeið árlega.  Öllum sem starfa að æskulýðsstarfi innan KFUM og KFUK ber skylda til þess að sitja námskeiðið Verndum þau.