Fræðsluráð KFUM og KFUK hefur skipulagt heildstæða leiðtogaþjálfun í 5 þrepum. Þjálfunin byggist á fjölbreyttum kennsluháttum, raunverulegum verkefnum og samvinnu nemenda. Ekki er því um að ræða eintóma fyrirlestra og flókin verkefni heldur námskeið þar sem nemendur læra, uppgötva og framkvæma. Leiðtogaþjálfunin er þjálfun sem nýtist bæði í sumar- og vetrarstarfi KFUM og KFUK.
I. þrep er grundvallarþjálfun leiðtoga. Efnistökin eru létt og skemmtileg og miða að því að leggja vandlega grunn að góðum eiginleikum leiðtogans ásamt því að veita undirstöðuþekkingu á kristinni trú og starfi KFUM og KFUK.
Eftirfarandi efnistök eru hluti af Leiðtogaþjálfun I:
Undirstöðuatriði kristinnar trúar
KFUM og KFUK í hnotskurn
Fundarstjórnun, samfélag og virðing.
Ég er fyrirmynd
Leikir og notkun þeirra í æskulýðsstarfi
Framsögn og frásagnir
Í II. þrepi er farið nánar í skyldur leiðtogans og lögð er áhersla á að hann þekki rétt viðbrögð við áföllum, þekki samskiptaleiðir og öðlist dýpri skilning á félaginu KFUM og KFUK. Gert er ráð fyrir að þeir sem hafa lokið II. þrepi séu tilbúnir að taka á sig ábyrgð í æskulýðsstarfi KFUM og KFUK.
Eftirfarandi efnistök eru hluti af Leiðtogaþjálfun II:
Kristin trú, bæn og biblíulestur
Uppbygging KFUM og KFUK
Uppbygging og samskiptaleiðir innan Þjóðkirkjunnar
Verndum þau - námskeið um einkenni ofbeldis gagnvart börnum og rétt viðbrögð.
Áfallaferlar innan KFUM og KFUK
Skyndihjálp
Á III. þrepi er lögð áhersla á samskipti og mikilvægi þess að eiga góð samskipti við alla hluteigandi aðila í æskulýðsstarfi hvort sem það eru börn, foreldrar, aðrir leiðtogar eða starfsmenn KFUM og KFUK. Fjallað er um leiðsögn Guðs, bæði í starfinu og á persónulegum nótum. Kennd verður brúðugerð og notkun þeirra í æskulýðsstarfi auk þess sem kennd er leikræn tjáning
Eftirfarandi efnistök eru hluti af Leiðtogaþjálfun III:
Líf á nýjum nótum
Efling samskipta
Ert þetta þú Guð? Um leiðsögn Guðs
Brúðugerð og meðhöndlun þeirra
Leikræn tjáning
Ætlast er til þess að leiðtogar sem sæki IV. þrep hafi orðið talsverða reynslu í æskulýðsstarfi. Fræðst er um helstu trúarbrögð, öfgatrúarhópa og dulhyggju auk þess sem kristna samfélagið á Íslandi er kortlagt. Farið verður í mikilvæga þætti sálgæslu og hlutverk leiðtogans í henni.
Eftirfarandi efnistök eru hluti af Leiðtogaþjálfun IV:
Eru sumir trúarhópar ekki kristnir? - Cults - hvernig þekki ég þá.
Helstu trúarhreyfingar (Islam, Budda, Hindu)
Dulhyggja (occultism) - hvað er það?
Trúarhreyfingar á Íslandi
Sálgæsla
V. þrep er lokaáfangi leiðtogaþjálfunarinnar og þar er tekist á við ýmis verkefni eins og umræðustjórnun, erfiðum spurningum, kristni í nútímasamfélagi og mikilvægi trúarinnar.
Eftirfarandi efnistök eru hluti af Leiðtogaþjálfun V:
Er hægt að sanna að Guð sé til?
Hvernig er hugsunarháttur fólks í dag?
Hvernig stjórna ég umræðu um trúmál?
Hvers vegna lætur Guð saklausa þjást?
Orsök - afleiðing eða frjáls vilji
Fagnaðarerindið
Kallaður af Guði