
KFUM og KFUK tekur þátt í fjölbreyttu alþjóðastarfi. Hátíðir, mót og námskeið erlendis eru hluti af því sem þátttakendum í starfi félagsins stendur til boða.
Smelltu á myndirnar til að lesa nánar um hvert verkefni.
Alþjóðleg verkefni sem KFUM og KFUK tekur þátt í er afrakstur margs konar alþjóðlegs samstarfs sem félagið tekur þátt í. KFUM og KFUK eru alþjóðlegar hreyfingar sem félagið á aðild að. Auk þess eiga norrænu KFUM og KFUK félögin með sér ýmis konar samstarf.
Norrænu KFUM og KFUK félögin starfa saman á margvíslegan hátt enda eru aðstæður á Norðurlöndunum oft sambærilegar. Eftirfarandi verkefni eru unnin í samstarfi við hin Norðurlöndin:
Norrænn formanna og framkæmdastjórafundur: Árlega hittast formenn og framkæmdastjórar KFUM og KFUK félaga á Norðurlöndunum á fundi. Þar eru fluttar skýrslur félaganna, sameiginleg málefni rædd og stoðir norræns samstarfs styrktar.
Nordisk börn kommite (NBK): Samráðsvettvangur norrænu KFUM og KFUK félaganna, fjallað er um norrænt æskulýðsstarf, helstu verkefni og ýmis málefni sem varða börn og unglinga. NBK skipupuleggur einnig Norræna mótið (Nordisk lejr).
Norræna mótið (Nordisk lejr): Norræna mótið er haldið annað hvert ár til skiptis á Norðurlöndunum. Síðast var Norræna mótið haldið í Færeyjum í júlí 2009 og næst verður það haldið í Danmörku árið 2011. Fyrsta mótið var haldið árið 1939, þannig að árið 2009 var haldið upp á 70 ára afmæli mótsins.
Norrænu mótin eru fyrir 11-16 ára unglinga. Þau eru byggð á þeirri hugmynd að kynnast öðrum sem tala annað tungumál og eru frá annari menningu en hafa rætur í sömu sögu. Unglingarnir læra mjög hratt og blandast vel saman. Oft hafa unglingar jafnvel tengst vináttuböndum þvert yfir öll landamæri.
Meðal dagskrárliða á norrænum mótum má nefna: Íþróttir, gönguferðir, fræðslustundir, kvöldvökur, sundferðir, dagsferð, næturleik og margt fleira spennandi.
KFUM í Evrópu: KFUM og KFUK á Íslandi er fullgildur aðili að KFUM í Evrópu, regnhlífasamtökum KFUM félaga á Evrópusvæðinu. Mikið og líflegt samstarf er meðal Evrópsku félaganna og tekur íslenska félagið virkan þátt í þeirri vinnu. Þessi verkefni eru helst:
Aðalfundur KFUM í Evrópu: Aðalfundurinn er haldinn árlega ýmist í ákveðnu aðildarlandi eða í Kennslumiðstöð KFUM sem staðsett er í Litomysl í Tékklandi. Á aðalfundinum er fjallað um þætti sem snerta öll aðildarfélögin, línur eru lagðar í sameiginlegu starfi og kosið er til stjórnar samtakanna. Samhliða aðalfundinum funda framkvæmdastjórar félaganna, vinnuhópar og ungmennaráð (Yes group).
Yes Group: er n.k. ungmennaráð KFUM í Evrópu. Yes group hefur það að markmiði að tryggja að sjónarmið ungs fólks sem tekur þátt í starfi KFUM félaga í Evrópu komi fram á aðalfundinum. Yes group vinnur líka að því að stuðla að nánara samstarfi ungmenna í ólíkum KFUM félögum í Evrópu. Þorgeir Arason tekur þátt í starfi Yes Group fyrir hönd KFUM og KFUK á Íslandi.
Field Group Ukraine: er stuðningshópur eldri KFUM félaga við KFUM í Úkraínu sem er tiltölulega ungt félag. KFUM í Úkraínu er enn að festa sig í sessi og aðstæður í landinu eru erfiðar fyrir félagsstarf. Þær sömu aðstæður gera það að verkum að gríðarleg þörf er fyrir félagsstarf eins og KFUM. Björgvin Þórðarson tekur þátt í starfi Field Group Ukraine fyrir hönd KFUM og KFUK á Íslandi.
Jól í skókassa: er samstarfsverkefni við KFUM í Úkraínu. Hópur ungmenna innan KFUM og KFUK, biblíuleshópurinn Bleikjan, hefur umsjón með verkefninu sem hefur verið haldið árlega síðan 2004. Verkefnið felur það í sér að safna jólagjöfum í skókössum sem síðan eru sendir til Úkraínu og gefnir munaðarlausum börnum. Meðlimir Bleikjunnar fylgja sjálfir kössunum eftir í hendur barnanna en KFUM í Ukraínu skipuleggur dreifingu kassanna.
Prag 2013: Evrópumót KFUM verður haldið í Prag 2013 í þriðja sinn. Evrópumótin hafa verð haldin á fimm ára fresti og eru þau fyrst og fremst til að fagna öllu því frábæra starfi sem unnið er á vegum KFUM í Evrópu. Þar koma saman ungmenni frá ólíkum löndum Evrópu og taka þátt í fjölbreyttri dagskrá. Evrópumótin eru einstök upplifun. Rúmlega 120 manna hópur fór frá Íslandi á síðasta Evrópumót 2008.
Evópusamband KFUK
KFUM og KFUK á Íslandi er ekki fullgildur aðili að KFUK í Evrópu en hefur áheyrnaraðild að félaginu. KFUM og KFUK á Íslandi sækir ýmsa viðburði á vegum sambandsins.
KFUK námskeið í Búdapest: árlega eru haldin námskeið fyrir ungar konur á vegum Evrópusambands KFUK. Námskeiðin fara fram í ungmennahúsinu í Búdapest og fjalla um ýmis málefni s.s. HIV/aids, kraft kvenna, samkirkjulegar samræður og fleira.
Heimssamband KFUK: KFUM og KFUK á Íslandi er fullgildur aðili að Heimssambandi KFUK. Meðal þeirra verkefna sem félagið tekur þátt í á vegum sambandsins er alþjóðleg bænavika KFUM og KFUK og aðalfunda sambandsins. Næsti aðalfundur verður í Zürich árið 2011.
Heimssamband KFUM: KFUM og KFUK á Íslandi er ekki fullgildur aðili að Heimssambandi KFUM en hefur þó áheyrnaraðild að félaginu. KFUM og KFUK á Íslandi tekur þátt í alþjóðlegu bænavikunni sem sambandið skipuleggur í samstarfi við Heimssamband KFUK. KFUM og KFUK á Íslandi er einnig boðið að senda fulltrúa á Heimsþing KFUM sem haldin eru á fjögurra ára fresti. Næsta heimsþing verður í Hong Kong árið 2010.
Í vinnslu.