Leikskóli KFUM og KFUK

Leikskóli KFUM og KFUK2022-04-11T10:57:45+00:00

Vinagarður er kristilegur leikskóli, staðsettur í Laugardalnum í Reykjavík. Leikskólinn er sjálfstætt starfandi og rekinn af KFUM og KFUK á Íslandi.

Starf leikskólans tekur mið af aðalnámsskrá leikskóla en auk þess er gengið út frá forsendum kristinnar trúar og áhersla lögð á kristna fræðslu, kristilegt siðgæði og að barnið öðlist grundvallartraust sem er viðfangsefni í trúarlegri uppeldismótun.

Í starfi leikskólans er einnig lögð áhersla á að börnin læri um náttúruna, læri að bera umhyggju fyrir henni og öllu því sem Guð hefur skapað.

Vináttan í víðum skilningi þess orðs er eins og rauður þráður í starfi leikskólans og er hún eitt af sérkennum hans. Tengist vináttan ávallt þemanu á einhvern hátt.

Skólinn er fyrir börn frá 12 mánaða aldri og skiptist í 5 deildir eftir aldri barnanna.

Markmið leikskólans er að :

  • að ala upp sjálfstæða, ábyrga einstaklinga sem elska og virða hvern annan og elska náungann eins og sjálfan sig.
  • að miðla menningararfinum og stuðla að persónulegum þroska barnanna.

Leikskóli KFUM og KFUK var stofnaður 17. nóvember 1975 og starfaði í Langagerði 1 í rúm 26 ár. Hann flutti á Holtaveg 28 í Reykjavík 2. apríl 2002 og hlaut þá nafnið Vinagarður leikskóli KFUM og KFUK.

Leikskólastjóri er Hildur B. Svavarsdóttir og má fá allar nánari upplýsingar hjá henni í síma 553 3038. Einnig er öllum velkomið að koma í heimsókn til okkar eða senda okkur tölvupóst á vinagardur@vinagardur.is.

Hægt er að sækja um leikskólapláss hér á vefnum.

Heimasíða leikskólans

 

Fara efst