Hér fyrir neðan eru siðareglur fyrir starfsfólk og sjálfboðaliða í starfi KFUM og KFUK á Íslandi. Þær eru tvískiptar. Siðareglum um samskipti er beint sérstaklega að þeim sem starfa með börnum, unglingum og ungu fólki á vettvangi, meðan siðareglum um rekstur og ábyrgð er beint sérstaklega að stjórnarfólki og þeim sem bera ábyrgð á fjárhag og stjórnun.

Siðareglurnar eru unnar í samstarfi KFUM og KFUK, Ungmennafélags Íslands, Bandalags íslenskra skáta og Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, en saman starfa þessi félagasamtök undir heitinu Æskulýðsvettvangurinn. Reglurnar voru unnar með styrk frá Æskulýðssjóði.

Siðareglur – samskipti

  1. Ávallt skal stuðla að velferð barna og unglinga og hafa að leiðarljósi það sem þeim er fyrir bestu.

  2. Starfsfólk og sjálfboðaliðar skulu gæta vandvirkni og samviskusemi auk þess að koma fram af umhyggju, heiðarleika og virðingu gagnvart öllum þeim sem starfað er með eða fyrir. Hafa skal í huga að orð og athafnir samrýmist starfi, umhverfi, stað og stund.

  3. Starfsfólk og sjálfboðaliðar eru fyrirmyndir þátttakenda í starfi og ber að sýna góða hegðun og gott fordæmi jafnt í starfi sem og utan þess.

  4. Stuðla skal að heilbrigðu, uppbyggjandi og vönduðu starfi með börnum og unglingum.

  5. Starfsfólk og sjálfboðaliðar skulu ekki mismuna börnum og unglingum með orðum eða hegðun á grundvelli þjóðernis, uppruna, kynþáttar, litarháttar, kyns, aldurs, trúarbragða, skoðana, kynhneigðar, fötlunar, efnahags, ætternis eða stöðu að öðru leyti.

  6. Starfsfólk og sjálfboðaliðar skulu gæta fyllsta trúnaðar og þagmælsku um allt það sem þeir fá vitneskju um í störfum sínum og ber að fara með sem trúnaðarmál. Þagnarskylda á þó aldrei við þegar starfsfólk eða sjálfboðaliðar verða þess áskynja að barn búi við óviðunandi uppeldisaðstæður, verði fyrir áreitni eða hvers konar ofbeldi eða stofni heilsu sinni og þroska í alvarlega hættu. Í slíkum tilfellum ber að fylgja ákvæðum IV. kafla barnaverndarlaga nr. 80/2002.

  7. Öll neysla tóbaks, áfengis eða annarra vímuefna er óheimil í starfi með börnum og unglingum.

  8. Starfsfólk eða sjálfboðaliðar, sem ráðnir eru til að starfa með börnum, skulu hæfir til þess. Ávallt skal leita eftir samþykki þeirra sem hyggjast hefja störf um leyfi fyrir öflun upplýsinga úr sakaskrá.

  9. Starfsfólk eða sjálfboðaliðar skulu ekki misnota stöðu sína á neinn hátt, svo sem líkamlega, andlega eða kynferðislega þegar kemur að samskiptum við þátttakendur eða annað starfsfólk og sjálfboðaliða.

  10. Starfsfólk og sjálfboðaliðar skulu sinna þátttakendum af alúð í starfi en halda sig í faglegri fjarlægð utan viðburða og forðast náið samband. Starfsfólk og sjálfboðaliðar skulu aldrei hafa frumkvæði að samskiptum við þátttakendur nema slíkt sé í tengslum við þátttöku barns og unglings.

  11. Starfsfólk og sjálfboðaliðar skulu aldrei stofna til óviðeigandi sambands við börn og ungmenni sem eru þátttakendur í starfi.

  12. Starfsfólk og sjálfboðaliðar skulu forðast þá aðstöðu að vera ein með þátttakanda.

  13. Aldrei skal stefna heilsu eða öryggi þátttakenda í hættu. Ávallt skal sýna fyllstu aðgát og varkárni í starfi og koma í veg fyrir að börn lendi í aðstæðum sem þau ekki ráða við. Þetta á bæði við um börn og sjálfboðaliða sem ekki hafa náð 18 ára aldri.

  14. Einelti skal aldrei liðið og skal starfsfólk og sjálfboðaliðar leitast við að koma í veg fyrir hvers konar ofbeldi, svo sem andlegt, líkamlegt eða kynferðislegt.

  15. Starfsfólk og sjálfboðaliðar skulu leitast við að eiga góð samskipti við samstarfsfólk og foreldra þátttakenda.

  16. Hafa skal í huga að mörk einstaklinga eru mismunandi og ber að virða þau. Varast skal hvers konar snertingar sem gætu leitt til misskilnings í samskiptum við börn, unglinga og samstarfsfólk.

  17. Starfsfólk og sjálfboðaliðar skulu huga að ábyrgum rafrænum samskiptum og netnotkun við þátttakendur. Forðast skal að eiga samskipti í gegnum síma og samskiptasíður á internetinu nema í tengslum við þátttöku barna í viðburðum.

  18. Þegar teknar eru ljósmyndir af börnum og unglingum sem þátttakendum í starfi skal virða friðhelgi þeirra og rétt til einkalífs. Aldrei skal taka eða birta óviðeigandi myndir af börnum og unglingum. Myndir af þátttakendum í starfi, sem teknar eru af starfsfólki og sjálfboðaliðum, skal aldrei nota til einkanota.

  19. Gerist aðili brotlegur við ofangreindar reglur er heimilt að vísa honum úr starfi, tímabundið eða að fullu.

Siðareglur – rekstur og ábyrgð

  1. Stjórnarfólk, starfsfólk og sjálfboðaliðar skulu gegna störfum sínum af kostgæfni, samviskusemi, trúmennsku og heiðarleika. Öllu starfi skal sinna með hagsmuni félagsins að leiðarljósi og standa vörð um markmið og heiður þess.

  2. Stjórnarfólk, starfsfólk og sjálfboðaliðar skulu sýna félaginu, samstarfsfólki, samstarfsaðilum og þátttakendum virðingu, sanngirni og trúnað í samskiptum sínum. Þeim ber að rækja störf sín af kostgæfni og samviskusemi auk þess að gæta hlutlægni og réttsýni.

  3. Stjórnarfólk, starfsfólk og sjálfboðaliðar skulu koma fram af heiðarleika og virðingu gagnvart öllum þeim sem starfað er með eða fyrir, auk þess sem engum skal mismunað með orðum eða hegðun á grundvelli þjóðernis, uppruna, kynþáttar, litarháttar, kyns, aldurs, trúarbragða, skoðana, kynhneigðar, fötlunar, efnahags, ætternis eða stöðu að öðru leyti.

  4. Stjórnarfólk, starfsfólk og sjálfboðaliðar skulu aldrei misnota aðstöðu sína gagnvart samskiptaaðilum eða þátttakendum með neinum hætti sér til framdráttar eða eigin hags. Komi upp sú staða að hætta sé á hagsmunaárekstrum skulu aðilar greina frá öllum hugsanlegum persónulegum hagsmunum sem geta haft áhrif á störf þeirra. Framkvæmdastjóri og stjórn metur hvort um hagsmunaárekstur er að ræða.

  5. Stjórnarfólk, starfsfólk og sjálfboðaliðar skulu forðast að taka að sér verkefni eða störf sem samræmast ekki eða ganga gegn skyldum eða störfum þeirra og eru til þess fallin að draga óhlutdrægni þeirra í starfi í efa. Ef vafamál kemur upp skal leita samþykkis framkvæmdastjóra eða stjórnar.

  6. Stjórnarfólk, starfsfólk og sjálfboðaliðar skulu gæta fyllsta trúnaðar og þagmælsku um allt það sem þeir fá vitneskju um í störfum sínum og ber að fara með sem trúnaðarmál. Þagnarskylda á þó aldrei við þegar ákvæði IV. kafla barnaverndarlaga nr. 80/2002 á við.

  7. Stjórnarfólki, starfsfólki og sjálfboðaliðum er ekki heimilt að nota trúnaðarupplýsingar sem þeir öðlast vegna starfa sinna sér til framdráttar eða í þágu eigin hagsmuna.

  8. Stjórnarfólk, starfsfólk og sjálfboðaliðar skulu leitast við að skapa jákvætt andrúmsloft í starfi. Gæta skal hófs og sanngirni í ummælum um hvert annað eða aðra svo sem með því að taka ekki þátt í slúðri eða dreifa rógi. Kynferðisleg áreitni eða einelti er ekki liðið.

  9. Öll starfsemi og vinnubrögð skulu unnin á opinn, upplýstan, gagnsæjan og lýðræðislegan hátt. Ávallt skal veita faglegar og réttar upplýsingar.

  10. Stjórnarfólk, starfsfólk og sjálfboðaliðar skulu ávallt fara vel með fjármuni og önnur verðmæti félagsins sem þeim er trúað fyrir eða hafa til umráða vegna starfs síns. Við ráðstöfun þeirra skal hafa hagsmuni félagsins að leiðarljósi. Aldrei er heimilt að skuldbinda félagið umfram samþykktir. Fjármuni og eigur skal aldrei nota nema í þágu félagsins eða verkefna sem samræmast stefnu þess.

  11. Upplýsingar um tekjur og ráðstöfun þeirra skal setja fram á einfaldan og skýran hátt og skulu upplýsingar vera aðgengilegar félagsmönnum. Allar færslur á fjármunum skulu skráðar með viðeigandi hætti og tækar til endurskoðunar.

  12. Aldrei skal afla styrkja með ólögmætum hætti eða blekkingum.

  13. Hver sá sem á í samskiptum við fjölmiðla skal sýna heiðarleika og gagnsæ vinnubrögð án þess að ljóstra upp trúnaðarupplýsingum. Lögð er áherslu á að veita réttar og eins nákvæmar upplýsingar og unnt er. Ekki skal fullyrða meira en vitneskja gefur tilefni til hverju sinni og viðurkenna þegar þekking er takmörkuð og afla frekari upplýsinga eða vísa fyrirspurnum annað.

  14. Við mannaráðningar skal gæta þess að misnota ekki aðstöðu til að ráða skyld- eða venslafólk til starfa. Komi upp slík staða skal viðkomandi starfsmaður víkja ráðningu til yfirmanns eða annars hæfs starfsmanns.

  15. Starfsfólk eða sjálfboðaliðar, sem ráðnir eru til að starfa með börnum, skulu hæfir til þess. Ávallt skal leita eftir samþykki þeirra sem hyggjast hefja störf um leyfi fyrir öflun upplýsinga úr sakaskrá.

  16. Stjórnarfólk, starfsfólk og sjálfboðaliðar skulu aldrei taka við né þiggja gjafir ef verðmæti þeirra er umfram það sem eðlilegt getur talist.

  17. Gerist aðili brotlegur við ofangreindar reglur er heimilt að vísa þeim úr starfi, tímabundið eða að fullu.