Verndum þau

Verndum þau - mynd af bókinniKFUM og KFUK á Íslandi hefur undanfarin misseri staðið fyrir Verndum þau - námskeiðum í samstarfi við UMFÍ og Bandalag íslenskra skáta undir merkjum Æskulýðsvettvangsins. Verndum þau - námskeiðin fjalla um hvernig bregðast skuli við grun um ofbeldi og vanrækslu gegn börnum og unglingum.

Kennarar námskeiðanna eru þær Ólöf Ásta Farestveit og Þorbjörg Sveinsdóttir, sem báðar hafa mikla reynslu af barnaverndarmálum.

KFUM og KFUK gerir kröfu um að allir starfsmenn og sjálfboðaliðar KFUM og KFUK sæki slíkt námskeið.

Hægt er að nálgast upplýsingar um námskeiðin hjá Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK í síma 588-8899 eða með tölvupósti á netfangið skrifstofa@kfum.is.