Innskráning

Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK

Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK á Íslandi er á Holtavegi 28 í Reykjavík. Þjónustumiðstöðin á að styðja við allt starf KFUM og KFUK á Íslandi. Þar starfa fjármálastjóri og bókari sem sjá um bókhalds- og fjármálaþjónustu fyrir allar starfsstöðvar félagsins, æskulýðsfulltrúar  sem skipuleggja barna og unglingastarfið og aðstoða sjálfboðaliða, fræðslufulltrúi sem sér um leiðtogafræðslu og fullorðinsstarf, framkvæmdastjórar stærstu sumarbúðanna og framkvæmdastjóri KFUM og KFUK á Íslandi.

Afgreiðslan  í Þjónustumiðstöðinni er opin alla virka daga kl. 9 – 17 og má þar nálgast upplýsingar um allt starf félagsins auk þess sem þar er til sölu ýmsir hlutir með merki félagsins, bækur og fleira.

Skoðaðu söluhornið!

Sími: 588 8899 

Fax: 588 8840

Netfang: kfum(hjá)kfum.is

Póstáritun Þjónustumiðstöðvarinnar er: 

KFUM og KFUK á Íslandi, Holtavegi 28, 104 Reykjavík

Í Þjónustumiðstöðinni er miðstöð daglegrar stjórnunar KFUM og KFUK og þar eru skrifstofur framkvæmdastjóra og annarra starfsmanna félagsins.

Þjónustumiðstöðin er tengd við félagsheimili KFUM og KFUK. Í félagsheimilinu er salur sem tekur um 160 manns í sæti og annar sem tekur um 50 manns, kennslustofa, eldhús, matsalur og minningarsafn sr. Friðriks Friðrikssonar.

Utan afgreiðslutíma Þjónustumiðstöðvar er hægt að ná í húsvörð í síma 862 8829