KFUM og KFUK á Íslandi og Sjóvá trygginga og forvarnafélag skrifuðu undir samstarfssamning í Vatnaskógi þann 16. júlí að viðstöddum 100 drengjum sem þar dvöldu í flokki. Forvarnarstarf KFUM og KFUK á Íslandi er fjölþætt, en rúmlega 17000 börn og unglingar taka árlega þátt í starfi félagsins. Áhersla KFUM og KFUK á að elska og virða eigið líf og annarra fellur vel að forvarnarstefnu Sjóvá og þó mikil blessun hvíli yfir sumarbúðum KFUM og KFUK á Íslandi er gott að vita til þess að jafnt öflugt og traust fyrirtæki eins og Sjóvá sýni félaginu það traust að gerast bakhjarl þess. Sumarbúðir KFUM og KFUK á Íslandi eru fimm talsins, Vatnaskógur í Svínadal, Vindáshlíð í Kjós, Kaldársel í Hafnafirði, Hólavatn í Eyjafirði og Ölver undir Hafnarfjalli. Mikil aðsókn hefur verið í sumarstarfið í sumar og verða þáttakendur vel á fjórða þúsund sem er aukning á milli ára. Vetrarstarf KFUM og KFUK á Íslandi er einnig öflugt þar sem rúmlega 150 sjálfboðaliðar sinna um 40 deildum víða um land, auk verkefna eins og Jól í skókassa. Allir þátttakendur í vetrarstarfi félagsins koma til með að fá kynningu á vönduðu starfi Forvarnarhúss Sjóvá og auka þannig öryggi sitt og lífsgæði, þá eru öll börn sem og starfsfólk félagsins tryggð hjá Sjóvá sem leggja mun KFUM og KFUK lið með ýmsum hætti.
Vodafone
Hreint
Brimborg