Grundvöllur og markmið
1. grein
a. Félagið heitir Kristilegt félag ungra manna og kvenna á Íslandi, skammstafað KFUM og KFUK.
b. Félagið starfar á grundvelli hinnar evangelísku lúthersku kirkju.
c. Félagið byggir á grundvallarsetningu Heimssambands KFUK, samþykktri á heimsþingi í Lundúnum 1898, sem hljóðar svo: Kristileg félög ungra kvenna í heiminum leitast við að safna saman ungum konum, sem viðurkenna Drottin Jesú Krist sem Guð sinn og frelsara, samkvæmt heilagri ritningu, eru í lífssamfélagi við hann fyrir kærleika Guðs sem er úthellt í hjörtu þeirra fyrir heilagan anda og vilja starfa í sameiningu að útbreiðslu ríkis hans meðal ungra kvenna á þann hátt sem samræmist orði Guðs.
d. Sömuleiðis byggir félagið á grundvallarsetningu Heimssambands KFUM, samþykktri á heimsþingi í París 1855, sem hljóðar svo: Kristileg félög ungra manna leitast við að safna saman ungum mönnum, sem viðurkenna Jesú Krist sem Guð sinn og frelsara, samkvæmt heilagri ritningu, og vilja vera lærisveinar hans í trú og líferni og starfa í sameiningu að útbreiðslu ríkis hans meðal ungra manna.
e. Lagagrein þessari má ekki breyta.
2. grein
a. Á grundvelli 1. gr. laganna starfar KFUM og KFUK einkum meðal barna, unglinga og ungs fólks. Markmið alls félagsstarfsins er að vekja trú á Krist og kalla til þjónustu í ríki hans, efla trúarlíf og siðferðiskennd og hlynna að andlegri, líkamlegri og félagslegri velferð einstaklingsins.
b. Orð Guðs skal skipa öndvegi í öllu starfi félagsins.
Félagar
3. grein
a. Börnum og unglingum sem taka þátt í starfi KFUM og KFUK er boðið að gerast félagar.
b. Fullgildur félagi í KFUM og KFUK er sérhver sá sem gengið hefur í félagið, er 18 ára, tilheyrir evangelískri lútherskri kirkju, greiðir félagsgjald og vill hlýða lögum félagsins og venjum.
c. Fólk úr öðrum kirkjudeildum getur einnig orðið fullgildir félagar í KFUM og KFUK, ef það skuldbindur sig til að gera engar tilraunir til þess að útbreiða sérkenningar kirkjudeildar sinnar í starfi félagsins.
d. Leitast skal við að öllum sjálfboðaliðum starfsmönnum félagsins, 18 ára og eldri, sé boðið að skrá sig í KFUM og KFUK á Íslandi.
e. Stjórnin hefur heimild til að neita fólki um inngöngu í félagið, svo og gera félaga burtræka brjóti þeir alvarlega gegn félaginu eða lögum þess.
Stjórn
4. grein
a. Stjórn félagsins er kosin á aðalfundi og er æðsta stjórnvald félagsins milli aðalfunda. Kjörtímabil stjórnarmanna er tvö ár. en varamanna eitt ár
b. Í stjórn KFUM og KFUK sitja átta aðalmenn, fjórir af hvoru kyni og tveir varamenn, karl og kona. Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum og kýs formann, varaformann, ritara og gjaldkera. Aðrir stjórnarmenn eru meðstjórnendur. Leitast skal við að jafnvægi sé gætt milli kynjanna í skipun embætta innan stjórnar. Haga skal kosningu þannig að tveir karlar og tvær konur gangi úr stjórninni á hverjum aðalfundi.
c. Launaðir starfsmenn í föstu starfi innan félagsins eða starfsstöðva þess og makar þeirra skulu ekki sitja í stjórn KFUM og KFUK á Íslandi né heldur vera varamenn.
d. Stjórnin heldur fundi, eins oft og þurfa þykir en þó að jafnaði einu sinni í mánuði og skal það er á fundunum gerist varðveitt á viðurkenndan hátt. Ef þörf krefur má boða til aukafunda. Fundur er lögmætur þegar a.m.k. fjórir aðalmenn mæta
e. Stjórninni ber að vaka yfir velferð félagsins í hvívetna. Hún markar stefnu þess, ber ábyrgð á og hefur yfirumsjón með rekstri þess og allra starfsstöðva sbr. 6. gr.
f. Stjórn félagsins kallar saman fulltrúaráð a.m.k. einu sinni á ári. Fulltrúaráð er skipað formönnum starfsstöðva eða staðgenglum þeirra. Fulltrúaráði ber að tryggja tengsl starfsstöðva við stjórn félagsins og vera henni til ráðgjafar.
Aðalfundur
5. grein
a. Aðalfund skal halda eigi síðar en í aprílmánuði ár hvert og skal stjórnin boða til hans með tryggilegum hætti með a.m.k. mánaðar fyrirvara. Verði óeðlilegur dráttur á að stjórn félagsins boði til aðalfundar getur fulltrúaráð boðað til aðalfundarins.
b. Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa fullgildir félagar sem greitt hafa árgjald liðins starfsárs.
c. Á aðalfundi eru eftirfarandi mál:
1. Skýrsla stjórnar lögð fram til samþykktar.
2. Reikningar liðins starfsárs ásamt efnahagsreikningi lagðir fram til samþykktar.
3. Skýrslur og reikningar starfsstöðva kynntir.
4. Fjárhags- og starfsáætlun kynnt og lögð fram til samþykktar.
5. Stjórnarkjör sbr. 4 gr. b)
6. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga til eins árs.
7. Ákvörðun árgjalds.
8. Lagabreytingar, ef einhverjar eru.
9. Önnur mál.
d. Stjórn félagsins skipar tveggja manna kjörnefnd, einn af hvoru kyni, eigi síðar en mánuði fyrir aðalfund. Kjörnefnd setur upp a.m.k. níu manna kjörlista fyrir stjórnarkjör á aðalfundi með hliðsjón af uppástungum félagsfólks, enda berist þær henni a.m.k. viku fyrir aðalfund. Kjörnefnd skal í störfum sínum við uppstillingu kjörlista leitast við að gæta jafnvægis milli kynja og búsetu.
e. 15 fullgildir félagsmenn geta gert tillögu til kjörnefndar að nafni á lista til stjórnarkjörs. Kjörnefnd er skylt að taka tillit til þeirrar tillögu.
f. Reiknings- og starfsárið er almanaksárið.
g. Kjörgengir í stjórn og sem skoðunarmenn reikninga eru fullgildir félagar sem hafa verið í félaginu í a.m.k. tvö ár samfleytt til þess dags sem kosning fer fram, sjá þó 3. mgr. 4. gr.
h. Aðalfundur getur ákveðið að fresta afgreiðslu einstakra liða til framhaldsaðalfundar, sem þá skal boðaður á sama hátt og aðalfundur.
Starfsstöðvar KFUM og KFUK á Íslandi
6. grein
a) KFUM og KFUK á Íslandi eru landssamtök deilda og starfsstöðva sem starfa undir merkjum þess. Félagið gætir hagsmuna starfsins gagnvart opinberum aðilum innanlands og kemur fram fyrir hönd þess í erlendu samstarfi.
b) Starfsstöðvar eru rekstrareiningar innan KFUM og KFUK sem hafa augljósa afmörkum t.d. vegna staðsetningar eða eðli starfseminnar. Þær starfa eftir sérstökum reglum sem hver starfsstöð setur sér og stjórn KFUM og KFUK staðfestir. Stjórnir starfsstöðvanna bera ábyrgð gagnvart stjórn KFUM og KFUK milli aðalfunda sinna og skulu senda stjórn félagsins afrit af fundargerðum sínum.
c) Höfuðstöðvar félagsins og varnarþing er í Reykjavík, Holtavegi 28.
d) Hver starfsstöð skal senda félagsstjórninni árlega skýrslu um störf sín, svo og afrit af ársuppgjöri, fjárhags- og starfsáætlun. Skulu þau gögn liggja fyrir viku fyrir boðaðan aðalfund félagsins.
e) Starfsstöðvar geta ekki gengið úr félaginu með eigur sínar. Sé starfsstöð lögð niður, falla allar eignir hennar til KFUM og KFUK á Íslandi.
f) Stjórn félagsins hefur heimild til að samþykkja nýjar starfsstöðvar eftir því sem þurfa þykir og við á. Einnig getur stjórn félagsins lagt niður starfsstöð ef ekki þykir grundvöllur fyrir starfsemi hennar.
Lagabreytingar
7. grein
a. Lögum þessum má einungis breyta á aðalfundi. Tillögur til lagabreytinga skulu sendar stjórn eigi síðar en 2 vikum fyrir boðaðan aðalfund. Berist stjórn tillögur til lagabreytinga fyrir aðalfundaboð skulu þær sendar út með því.
b. Tillögur til lagabreytinga öðlast því aðeins gildi að 2/3 hlutar greiddra atkvæða séu þeim fylgjandi.
c. Lög þessi ganga framar og koma í stað annarra og eldri laga KFUM og KFUK félaga og ganga framar lögum starfsstöðva félagsins.
Samþykkt í Reykjavík, 29. apríl 2006.