Innskráning

Erlent samstarf

European YMCA – Evrópusamband KFUM

Evrópuþing KFUM er haldið árlega og hafa Íslendingar tekið þátt í því undanfarin ár.

Social Inclusion Programme Group er einn af vinnuhópum Evrópusambands KFUM og hefur hann það hlutverk að efla starf með hópum og einstaklingum sem af einhverjum ástæðum hafa lent undir í samfélaginu. Fulltrúi KFUM og KFUK á Íslandi hefur verið í hlutverki formanns frá árinu 2005.

World YWCA – Heimssamband KFUK

Heimsþing KFUK er haldið á fjögurra ára fresti og var síðast haldið í Nairobi í Kenya sumarið 2007 og tókur þrjár konur frá KFUK á Íslandi þátt í því.

Norrænt samstarf

KFUM og KFUK á Íslandi hefur tekið þátt í norrænu samstarfi KFUM og KFUK félaga um langt skeið.

Á hverju ári er haldinn norrænn formanna og framkvæmdastjórfundur til skiptis í aðildarlöndunum og einnig er árlega haldinn norrænn fundur æskulýðsnefndar KFUM og KFUK sem m.a. skipuleggur norræn æskulýðsmót sem haldin eru á tveggja ára fresti til skiptis í aðildarlöndunum Slíkt mót var haldið í Finnlandi sumarið 2007. Þar tóku um 60 íslenskir unglingar þátt í mótinu.

KFUM og KFUK í Danmörku

KFUM og KFUK í Noregi

KFUM og KFUK í Svíþjóð

KFUM og KFUK í Finnlandi