Innskráning

Hvað er „Jól í skókassa”

„Jól í skókassa” er alþjóðlegt verkefni sem felst í því að fá börn jafnt sem fullorðna til þess að gleðja önnur börn sem lifa við fátækt, sjúkdóma og erfiðleika með því að gefa þeim jólagjafir. Með slíkum gjöfum er þeim sýndur kærleikur Guðs í verki. Gjafirnar eru settar í skókassa og til þess að tryggja að öll börnin fái svipaða jólagjöf er mælst til þess að tilteknir hlutir séu í hverjum kassa.


Fyrir jólin 2004 ákvað hópur ungs fólks innan KFUM og KFUK að láta reyna á verkefnið hér á landi. Þá voru undirtektirnar frábærar og söfnuðust rúmlega 500 kassar það árið. Verkefnið hélt svo áfram og árið 2005 urðu skókassarnir 2600. Sú tala nær tvöfaldaðist árið 2006 þegar tæplega 5000 gjafir bárust og svipaður fjöldi aftur árið 2007.


Skókassarnir eru sendir til Úkraínu. Þar búa um 50 milljónir manna og er atvinnuleysi mikið og ástand meðal íbúa víða bágborið. Á því svæði þar sem jólagjöfunum verður dreift er allt að 80% atvinnuleysi og þar ríkir mikil örbirgð. Íslensku skókössunum er meðal annars dreift á munaðarleysingjaheimili, barnaspítala og til barna einstæðra mæðra sem búa við sára fátækt.

Flest börnin búa á munaðarleysingjaheimilum við erfiðar aðstæður. Þau eiga ekkert sjálf og dagarnir eru allir eins. Þau vakna á sama tíma, horfa á sjónvarp og leika sér á ákveðnum tímum og fara að sofa á ákveðnum tíma. Engin tilbreyting. En þegar skókassarnir koma frá Íslandi gerist eitthvað. Þau fá gjafir sem þau eiga sjálf, þau skynja að það er ekki öllum sama um þau, þau finna kærleikann. Svo fá þau að gefa sjálf þegar Íslendingarnir koma með kassana. Þau undirbúa alls konar sýningar, búa til sælgæti og föndra kort. Þau læra um Ísland og munu aldrei gleyma því þetta er þeim svo mikilvægt.


Kirkjan í Úkraínu er rússnesk rétttrúnaðarkirkja og starfar KFUM í Úkraínu innan þeirrar kirkjudeildar. Aðalskipuleggjandi dreifingarinnar í Úkraínu er faðir Evheniy Zhabkovskiy sem komið hefur tvisvar hingað til lands í heimsókn. 

Hér má sjá nánari upplýsingar og myndir frá verkefninu: www.skokassar.net