Innskráning

Vormót YD

11.03.2010
Eftir: Haukur Árni Hjartarson

Í dag fara á annaðhundrað börn í Vindáshlíð, Ölver og Vatnaskóg til að skemmta sér saman og fagna komu vorsins. Stúlkurnar fara í Vindáshlíð og/eða Ölver og drengirnir fara í Vatnaskóg. Ég get lofað frábærri skemmtun og miklu stuði á báðum stöðum. Lagt verður af stað frá Holtavegi 28 klukkan 17:30 (fyrir þær deildir sem eru á Reykjavíkursvæðinu og 16:30 frá Hátúni í Reykjanesbæ og Hveragerðiskirkju.

 

Gott er að taka með sér!

Svefnpoka eða sæng

Kodda, Náttföt, Tannbursta, Tannkrem, Hársápu, Sundföt, Handklæði, Auka sokka, Auka brækur, Auka buxur, Auka bol, Auka peysu, Hlýa peysu, Úlpu, Vettlinga, Húfu, Góða skó, Innanhússkó, íþróttaföt, Vasaljós, Góða skapið, Nýja testamentið.

 

EKKI taka þetta með!

Nammi, Ipod, MP3, geislaspilara, tölvuspil, GSM-síma, Tölvu, hníf og annað sem foreldrar telja óæskilegt í svona ferð.

KFUM og KFUK ber ekki ábyrgð á þeim hlutum sem barnið hefur með í för.

 

(drög) Dagskrá YD mót 2010

Föstudagurinn 13. mars

16:30................. Lagt af stað frá

........................... Keflavík og Hveragerði

17:30................. Lagt af stað úr

........................... Reykjavík

18:30................. Komið sér fyrir á

........................... staðnum

19:00................. Matur

19:45................. Leikir

20:30................ Kvöldvaka

21:30................. Kvöldhressing

22:00................ Kyrrðarstund

22:30................ Hátta og bursta

23:00................

 

Laugardagur 14. mars

08:00................ Vakning

08:30................ Morgunmatur

09:00................ Morgunstund

09:30................ Skipulögð dagskrá í

........................... íþróttahúsi

........................... mót og leikir

12:00................. Hádegismatur

12:45................. Klemmuleikurinn

13:30................. Frágangur

........................... pakka og taka til

14:30................. Lokastund

15:00................. Heimför

16:00................. Heimkoma í Reykjavík

17:00................. Heimkoma í Hveragerði

........................... og Keflavík

 

Flokkur: Æskulýðsstarf